Hallgrímskirkja – Meira en hús
18. október 2026

Meira en hús
Í roðagylltu sólarlaginu ber hún við himinfestinguna
Eins og turninn sé að teygja sig til móts við Guð.
Fíngerður krossinn eins og smágerður fingur sem snertir dýrð Guðs, kvöldroðann eða bláan árrisulan morgunhiminn eða grástrokinn skýjahiminn.
Kirkjuna ber við himinn og sést svo víða að. Kennileiti en þó fyrst og fremst
Hlið himins eins og Pétur Sigurgeirsson biskup vísaði í vígsluorðum sínum þegar kirkjan var vígð,
“Hér er Guðs hús, hér er hlið himinsins, staðurinn sem þú stendur á er heilög jörð.”
Stígum inn í þetta Guðs hús, inn í dagsljósið sem streymir óhindrað um kirkjuskipið og horfum upp í hvelfingar sem geyma orðið ótal tóna, ótal orð, hlustum
Klukkurnar hringja inn helgihald sunnudagsins og breyta svo um tón og hringja af varfærni inn útfarir en gleðjast svo aftur þegar brúðhjón ganga saman út úr kirkjunni.
Hallgrímskirkja er hús tímamóta, lífsgleði, þakklætis og svo kveðjustunda.
Hallgrímskirkja er hús tóna og tónlistar. Býr yfir töframætti kirkju þar sem leikið er á alla strengi hinnar mannlegu tilveru.
Kirkja er vígð til þjónustu við Guð og fagnaðar – og vonarboðskap hans og eignast strax sögu sem snertir marga. Sagan verður til úr sögum fólksins sem sækir kirkjuna heim, skilur eftir andardrátt sinn í kirkjunni og hugsun, undrun oft og aðdáun, gleði og sorg, efa og trú.
..í mildi og tign
Pétur Sigurgeirsson ritar í Kirkjuritið 1. desember árið 1962.
“Líkan Hallgrímskirkju er mér minnisstætt síðan ég sá það fyrst. Það er fagurt og á þessari hæð mun kirkjan rísa í mildi og tign og setja sinn svip á höfuðborgina
Kirkjan mun prédika sjálf, minna á vorn himneska föður, sem veitir öllum blessun sína, er í hús hans ganga.
Nú í ár hefur helgihald verið í tignarlegu og hljómfallegu kirkjuskipinu í 40 ár.
Fleiri en 80 ár hafa liðið meðan smátt og smátt hefur risið kirkja hefur verið hér samfélag fólks. Allt frá því byrjað var á kjallara undir kór kirkjunnar sem fyrstu árin kúrði eins og lítið bogadregið listhús á Skólvörðuhæðinni.
Síðan flutti söfnuðurinn í bjartari sal í suðurvæng kirkjuturnsins árið 1974
og loks var stóra stundin runnin upp.
Það hefur vafalaust ekki verið í huga séra Péturs Sigurgeirssonar þarna árið 1962 að hann ætti eftir að vígja þennan fallega helgidóm þegar hann loks væri risinn í mildi og tign en …
Að morgni 26. október 1986 var síðan gengið í Guðshús inn undir prósessíutónlist eftir Þorkel Sigurbjörnsson til vígslu Hallgrímskirkju og síðan var messað í nývígðum helgidóminum þar sem lagt hafði verið á altari helgigripir og gengið að skírnarsá og hann helgaður í bæn, síðan að prédikunarstól og beðin bæn og síðan að orgeli og bæn beðin.
Að lokum, áður en hin eiginlega messa hófst ávarpaði þáverandi forseti Íslands, Vigdís Finnbogadóttir viðstadda og sagði:
“Sú kirkja sem nú hefur verið vígð- Hallgrímskirkja á Skólavörðuholti- hlýtur um ókomna tíma að skipa sérstakan sess í huga þjóðarinnar, vegna þeirra minninga sem hún er tengd. Hún er og verður tákn þess sem er ennþá meira og stærra en sérhvert hús gert af manna höndum. Hún er tákn þess hvernig einum manni, í þjáningu og neyð, tókst með trúarstyrk sínum og andagift að blása þjóð sinni í brjóst þolgæði og samhug á þrengingartímum í sögu hennar
Hallgrímur Pétursson gaf Íslendingum Passíusálma sína, andlegt stórvirki sem aldrei firnist né kvarnast úr meðan lifir sjálfstæð tunga hjá sjálfstæðri þjóð “
Hallgrímskirkja varð veruleiki á Skólvörðuholtinu fyrir verk ótalmargra, dugnað ótal kvenna og karla, ósérhlífni og trú. Við minnumst þeirra af virðingu og þökk og biðjum Guð að blessa
Stór kirkja, djúp minning, kærleikur margra og fjöldi fólks hefur átt viðkomu í kirkjunni, kannski milljónir.
Hallgrímskirkja
Hátíðarstundir í kirkjuskipi Hallgrímskirkju er ótal margar.
Prúðbúinn söfnuður á hátíðisdögum og helgum. Prúðbúið fólk sem kemur til að fagna við tímamót, kveðja ástvini, fagna nýju lífi í skírn, unglingi á fermingardegi eða giftingu. Kirkja er oft rammi utan um líf fólks, myndar þráð frá vöggu til grafar.
Og nú höldum við hátíð til að þakka og minnast í orðum og tónum.
Í Hallgrímskirkju leikur tónlistin stóran þátt, sungin leikin, orgel og margar raddir
Er eins og hjartsláttur í helgihaldi, athöfnum og á tónleikum.
…
“Allt sem andardrátt hefur, lofi Drottinn”
Með þessum orðum og nýju tónverki eftir Áskel Másson hófst messa í Hallgrímskirkju á vígsludegi.
Í tilefni af vígsluafmælinu í ár hefur enn og aftur verið kallað eftir nýrri kirkjutónlist.
Haukur Tómasson tónskáld og félagi í kór Hallgrímskirkju hefur í tilefni af vígsluafmæli kirkjunnar samið verk fyrir kór og orgel sem ber heitið Psalmus 150
Sálmur 150 í Gamla testamentinu sem hefst á orðunum
“Lofið Guð í helgidómi hans,
lofið hann í voldugri festingu hans.”
og endar á orðunum
“Allt sem andardrátt hefur – lofi Drottinn”
Þetta er táknrænt fyrir kirkju og söfnuð við tímamót. Ný tónlist verður til við aldin orð sem lifa allt.
Við fögnum þessum tímamótum og dagskrá hátíðarinnar ber vott um það og þó að hátíðinni ljúki þá er gaman að segja frá því af því tónlistarsstjóri Hallgrímskirkju, Björn Steinar Sólbergsson hefur hljóðritað disk sem er nýkominn út og var fylgt eftir á glæsilegum tónleikum sem haldnir voru einnig í tilefni af 40 ára starfsafmæli hans sem organista.
Kór Hallgrímskirkju undir stjórn Steinars Loga Helgasonar heldur útgáfutónleika 25. október í tilefni af nýjum diski sem kemur út í tilefni af vígsluafmælinu.
Einnig verða gefnir út Passíusálmar í nýju broti. Myndlistin fær sitt rými en opnuð verður sýning á teikningum Halldórs Bragasonar listamanns þar sem hann teiknar atburði úr sögu Hallgrímskirkju svo eitthvað sé nefnt.
Við bjóðum ykkur velkomin að njóta með okkur hér við hlið himins, undir háum turni innan um veggi sem gætu hvíslað langri sögu bæði orðum og tónum.
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir, sóknarprestur