Hausttónleikar Kórs HallgrímskirkjuOrgelsumar í Hallgrímskirkju 2026 / Organ Summer — Eyþór Franzson Wechner


Dagsetning

01.ágúst 2026 -01.ágúst 2026

Klukkan:

12:00

Orgelsumar í Hallgrímskirkju 2026

Hádegistónleikar

— Eyþór Franzson Wechner, organisti við Blönduóskirkju

Laugardagur 1. ágúst kl. 12.00

Miðar fást í Hallgrímskirkju og á Tix.is

Aðgangseyrir 3.200 kr.


Eyþór Franzson Wechner fæddist á Akranesi og hóf orgelnám 14 ára gamall, fyrst undir leiðsögn Úlriks Ólasonar og síðar hjá Birni Steinari Sólbergssyni við Tónskóla Þjóðkirkjunnar og Listaháskóla Íslands.

Eftir tveggja ára nám við Listaháskóla Íslands hélt hann til náms í Þýskalandi. Við Hochschule für Musik und Theater „Felix Mendelssohn Bartholdy“ í Leipzig lauk hann Bachelor of Arts-gráðu í orgelleik árið 2012 og Master of Arts-gráðu árið 2014. Helsti kennari hans þar var Stefan Engels prófessor.

Eyþór starfar nú sem organisti við Blönduóskirkju og nærsveitir og kennir við Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga og Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Hann hefur haldið einleikstónleika á Íslandi, í Þýskalandi, Litáen og Ástralíu.


HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN TÓNLEIKASTAÐUR


--ENGLISH--


Organ Summer at Hallgrímskirkja 2026

Saturday, August 1st at 12:00

Eyþór Franzson Wechner organ Blönduóskirkja

Tickets available at Hallgrímskirkja and via Tix.is

Admission: ISK 3,200


Eyþór Franzson Wechner was born in Akranes and began studying the organ at the age of 14, first with Úlrik Ólason and later with Björn Steinar Sólbergsson at the National Church Music School and the Iceland University of the Arts.

After two years of study in Iceland, Eyþór continued his education in Germany. At the Hochschule für Musik und Theater “Felix Mendelssohn Bartholdy” in Leipzig, he completed a Bachelor of Arts degree in organ performance in 2012 and a Master of Arts degree in 2014. His principal teacher in Leipzig was Professor Stefan Engels.


Eyþór currently serves as organist at Blönduós Church and surrounding parishes, and he teaches at the Music School of Austur-Húnavatnssýsla and the National Church Music School. He has performed solo concerts in Iceland, Germany, Lithuania, and Australia.


HALLGRÍMSKIRKJA – YOUR PLACE IN REYKJAVÍK