15. júní - 31. júlí
Fræðsla
Hallgrímskirkja
annar gluggi til hægri – ENSKA / english
Einkasýning Ídrisar Róbertsdóttur
Sýningarstjóri: Ægis Zita
Listrænn stjórnandi: Inga Jónsdóttir
15.júní til 31.ágúst 2025
Annar gluggi til hægri er myndlistarsýning þar sem textíll ræður ríkjum. Textíll, eitt elsta listform veraldar, hefur fengið aukna og verðskuldaða athygli á undanförnum árum og því fagnaðarefni að fá að líta innsetningu Ídrisar Róbertsdóttur í Hallgrímskirkju. Hann er samofinn sögu kristni sem meðal annars má sjá í litríkum fagurlega hönnuðum höklum og . Með verkinu tekst listamaðurinn á við staðsetninguna, rýmið og arfleifðina. Sýningarstjórinn, Ægis Zita, setur það í nýtt samhengi því listaverkið var áður hluti af verðlaunaðri afmælissýningu Textílfélagsins 50/100/55 árið 2024 sem einnig var undir sýningarstjórn Ægisar Zita.
Innsetningin samanstendur af litríkum þráðum og línum sem mynda fjölskrúðug og margvísandi form sem komið er fyrir í einu afmörkuðu rými, umlukið fjórum súlum kirkjuskipsins framan við gluggann sem er annar til hægri þegar gengið er þangað inn. Kirkjuna hannaði hinn rómaði arkitekt, Guðjón Samúelsson (1887–1950) sem teiknað hefur margar af þekktustu byggingum landsins. Í engri annarri kirkju á íslandi má sjá lofthæð sem í Hallgrímskirkju þar sem línur og form skapa heillandi stílhreinan heim enda tileinkuð þeim andans manni Hallgrími Péturssyni (1614–1674), þekktasta sálmaskáldi landsins. Línur úr penna skáldsins skópu ekki eingöngu form sálma heldur einnig veraldlegar vísur og ljóð. Kunnasta verk hans eru þó Passíusálmarnir sem hafa verið gefnir út oftar en nokkur önnur íslensk bók og þýddir á fjölda erlendra tungumála.
Þegar Hallgrímur þurfti að hverfa frá námi í Kaupmannahöfn settist hann ásamt fjölskyldu að á Suðurnesjum þar sem hann lifði erfiða tíma sem verkamaður. Velgjörðarmaður hans, Brynjólfur Sveinsson biskup í Skálholti, setti hann sem prest í Hvalsneskirkju að nokkrum árum liðnum þar sem orðsnilld hans tók að blómstra og náði eyrum sóknarbarnanna. Síðar þegar hann fékk stöðu við Hallgrímskirkju í Saurbæ náði skáldskapur hans hæstu hæðum. Bein sjónlína liggur frá öðrum glugga til hægri til Suðurnesja þar sem sterk öfl takast nú á í iðrum jarðar og móta landið í litríku sjónarspili.
Þannig nær innsetningin að leiða huga áhorfenda langt út fyrir hið afmarkaða rúm hennar en einnig inn á við. Með því að leysa formið upp, opna hálflokað form skúlptúrsins í miðjunni gefur Ídris Róbertsdóttir verkinu ákveðna spennu þar sem hið jarðbunda togast á við hið upphafna og ósjálfrátt koma í hugann ljóðlínurnar Upp, upp mín sál og allt mitt geð ... úr Passíusálmunum.
Við vonum að þið megið vel njóta og ígrunda.
Inga Jónsdóttir
Listrænn ráðgjafi í Hallgrímskirkju

ÍDRIS RÓBERTSDÓTTIR
Ídris er búsett í Reykjavík. Hún er samtíma textíllistamaður. Í Hallgrímskirkju kannar Ídris díalektík anda og efnis innan rýmis Guðjóns Samúelssonar og arfleifð Hallgríms Péturssonar.

ÆGIS ZITA
Ægis býr í Reykjavík. Hann er sýningarstjóri samtímalistar, listrænn kvikmyndargerðarmaður og tilvistarheimspekingur með alþjóðlega nærveru.
HALLGRÍMSKIRKJA – STAÐUR LJÓÐA OG LISTA!