ARVO PÄRT – POULENC – FINNUR KARLSSON
Sunnudagur 18. maí kl. 17 / Sunday May 18th at 17 hrs.
Flytjendur:
Kór Hallgrímskirkju
Kammersveit Reykjavíkur
Jóna G. Kolbrúnardóttir sópran
Una Sveinbjarnardóttir konsertmeistari
Björn Steinar Sólbergsson orgel
Steinar Logi Helgason stjórnandi
Miðasala fer fram í Hallgrímskirkju og á tix.is
Aðgangseyrir 5.900 kr.
Á þessum tónleikum verður frumflutt nýtt verk eftir Finn Karlsson sem ber heitið Sköpun. Í því er sköpunarsaga Biblíunnar tónsett og henni teflt á móti ljóðum tveggja íslenskra skálda, Hallgríms Péturssonar og Vilborgar Dagbjartsdóttur. Verkið er samið fyrir kór, sópransöngkonu, orgel og kammersveit og tónskáldið segir að það sé á vissan hátt óður til allrar þeirrar kirkjutónlistar sem hann hefur sjálfur flutt yfir árin, allt frá sálmasöng yfir í stærri trúarleg verk.
Hin verkin tvö, eftir Arvo Pärt og Francis Poulenc, sækja bæði til kirkjutónlistar fyrri alda en tónskáldin vinna úr þeim arfi á einstakan og nútímalegan hátt. Orgelkonsert Poulencs telst til hans öndvegisverka og tónverkið Fratres er eitt þeirra verka Pärts sem hvað oftast er flutt.
Björn Steinar Sólbergsson er organisti og tónlistarstjóri Hallgrímskirkju og kennir jafnframt orgelleik við Tónskóla Þjóðkirkjunnar og Listaháskóla Íslands. Hann nam við Tónlistarskólann á Akranesi og Tónskóla Þjóðkirkjunnar og stundaði síðan framhaldsnám á Ítalíu hjá James E. Göettsche og í Frakklandi við Conservatoire National de Region de Rueil Malmaison hjá Susan Landale, þaðan sem hann útskrifaðist með einleikarapróf í orgelleik árið 1986.
Björn Steinar starfaði sem organisti við Akureyrarkirkju í 20 ár og vann að uppbyggingu tónlistarstarfs þar áður en hann tók við starfi organista við Hallgrímskirkju. Hann hefur haldið fjölda einleikstónleika hér heima og erlendis, hljóðritað fyrir útvarp og sjónvarp og leikið inn á hljómplötur, m.a. orgelkonsert Jóns Leifs fyrir útgáfufyrirtækið BIS en sú plata hlaut einróma lof gagnrýnenda. Þetta er í þriðja sinn sem Björn Steinar leikur einleik í orgelkonsert Poulencs en hann lék hann á Kirkjulistaviku í Akureyrarkirkju með Kammerhljómsveit Akureyrar árið 1989 og aftur 1997 með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Una Sveinbjarnardóttir er konsertmeistari Kammersveitar Reykjavíkur og starfar sem konsertmeistari hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hún kemur fram sem einleikari og leiðari hérlendis sem erlendis og fæst einnig við tónsmíðar. Hún hefur spilað á fjölda upptaka meðal annars með Björk, (Homogenic, Vulnicura, Fossora), Jóhanni Jóhannssyni, Ensemble Modern, Útvarpshljómsveit Berlínar RSB og hljómsveit Þýsku óperunnar. Hún hefur unnið með Pierre Boulez, Krystof Penderecki, Mstislav Rostropovich, Marek Janowski og Heinz Holliger, einnig Atla Heimi Sveinssyni, Helmut Lachenmann og fjölda samtímatónskálda. Fyrsta plata Unu, Fyrramál, kom út 2007, önnur platan Umleikis (2014) hefur að geyma eigin tónsmíðar hennar fyrir sólófiðlu og árið 2021 gaf hún út plötuna Last Song ásamt Tinnu Þorsteinsdóttur píanóleikara. Una er einn stofnfélaga Strokkvartettsins Sigga og hún myndar ásamt Arngerði Maríu Árnadóttur dúóið Translations sem mun koma fram í Hallgrímskirkju í júní.
Jóna G. Kolbrúnardóttir lauk BA-prófi í söng við Tónlistarháskólann í Vínarborg og stundaði síðan framhaldsnám við Konunglegu dönsku óperuakademíuna þaðan sem hún útskrifaðist árið 2021. Hún söng sitt fyrsta hlutverk við Konunglegu óperuna í Kaupmannahöfn árið 2020, þar sem hún fór með hlutverk Papagenu í Töfraflautunni eftir Mozart. Jóna söng Grétu í Hans og Grétu eftir Humperdinck í Íslensku óperunni árið 2018 og Önnu í óperu Daníels Bjarnasonar Brothers árið 2022. Hún er einn af stofnendum Kammeróperunnar sem hefur það markmið að auka framboð á smærri óperuuppfærslum hérlendis. Á vegum Kammeróperunnar hefur Jóna m.a. sungið Despinu í Così fan tutte og Súsönnu í Brúðkaupi Fígarós. Hún hefur einnig komið oft fram sem einsöngvari með Sinfóníuhljómsveit Íslands og hún syngur reglulega einsöng með helstu kórum landsins.
Steinar Logi Helgason lærði á píanó í Tónmenntaskóla Reykjavíkur, Nýja Tónlistarskólanum og í Tónlistarskólanum í Reykjavík. Hann hóf nám í Tónskóla Þjóðkirkjunnar árið 2010 og tók þar kirkjuorganistapróf en lauk síðar bakkalárgráðu af kirkjutónlistarbraut Listaháskóla Íslands undir handleiðslu Björns Steinars Sólbergssonar. Steinar Logi stundaði stjórnandanám til meistaraprófs við Konunglega tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn og útskrifaðist þaðan í lok árs 2020. Hann hefur stjórnað fjölda kóra og starfað víða sem organisti, píanóleikari og stjórnandi. Hann var tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2021 ásamt Cantoque Ensemble sem tónlistarhópur ársins í flokki sígildrar og samtímatónlistar. Steinar Logi tók við stöðu kórstjóra Hallgrímskirkju haustið 2021.
Kammersveit Reykjavíkur var stofnuð árið 1974 og fagnar því 50 ára afmæli á þessu starfsári. Hún heldur reglulega tónleika og spannar verkefnavalið kammertónlist allt frá barokktímanum til nútímans. Kammersveitin hefur frumflutt fjölda tónverka eftir íslensk og erlend tónskáld og á undanförnum árum hefur hún lagt áherslu á útgáfu þeirra mörgu verka sem íslensk tónskáld hafa samið sérstaklega fyrir hana. Þar má nefna þrjá hljómdiska með verkum Atla Heimis Sveinssonar (Á gleðistundu, Tíminn og vatnið, I call it) og hljómdiskinn Langur skuggi með kvartettum eftir Atla Heimi, Karólínu Eiríksdóttur, John Speight, Leif Þórarinsson og Svein Lúðvík Björnsson, auk septetts eftir Hauk Tómasson. Á safndisknum Gríma, sem út kom árið 2016, eru verk níu tónskálda og sýnir hann glöggt það margbreytilega hlutverk sem Kammersveitin gegnir í íslensku tónlistarlífi samtímans. Nýjasta plata sveitarinnar er Windbells (2022) sem geymir verk eftir Huga Guðmundsson.
Kór Hallgrímskirkju var stofnaður haustið 2021. Hann hefur frá stofnun tekið þátt í
helgihaldi í Hallgrímskirkju ásamt því að sinna tónleikahaldi og upptökum. Kórinn leggur
mikið upp úr flutningi á íslenskri kórtónlist og stuðlar að nýsköpun með frumflutningi nýrra
tónverka. Á síðasta starfsári flutti hann til dæmis ný verk eftir Báru Grímsdóttur, Finn
Karlsson, Hreiðar Inga Þorsteinsson og Ingibjörgu Ýri Skarphéðinsdóttur. Kórinn hefur átt í
gjöfulu samstarfi við Kammersveit Reykjavíkur og Barokkbandið Brák og hann hefur í tvígang
komið fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands, síðast við frumflutning Darraðarljóða eftir Jón
Leifs á 75 ára afmælistónleikum hljómsveitarinnar í mars síðastliðnum. Steinar Logi
Helgason er stjórnandi kórsins.
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN TÓNLEIKASTAÐUR!