Eyþór Ingi Jónsson organisti og Jón Þorsteinn Reynisson harmónikkuleikari / Orgelsumar í Hallgrímskirkju

Laugardagur 9. ágúst kl. 12
Eyþór Ingi Jónsson orgel Akureyrarkirkja
Jón Þorsteinn Reynisson harmonikka

Miðasala í Hallgrímskirkju og á tix.is
Aðgangseyrir / Admission ISK 2.900

Eyþór Ingi Jónsson og Jón Þorsteinn Reynisson sameina orgel og harmonikku í óvenjulegri og spennandi tónleikaupplifun í Hallgrímskirkju.

Eyþór Ingi Jónsson lauk kantorsprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar árið 1998, undir leiðsögn Harðar Áskelssonar o.fl. Á árunum 1999-2007 nam hann við Tónlistarháskólann í Piteå í Svíþjóð, fyrst við kirkjutónlistardeild og síðar við konsertorganistadeild. Aðal orgelkennari hans var prof. Hans-Ola Ericsson. Kórstjórnarprófessorinn var Erik Westberg. Hann hefur sótt meistarakúrsa og einkatíma hjá mörgum af þekktustu orgelleikurum og kórstjórum samtímans.

Hann heldur líka reglulega námskeið og fyrirlestra. Hann hefur haldið fjölda einleikstónleika hérlendis og erlendis. Einnig hefur hann leikið með fjölda innlendra og erlendra tónlistarmanna, bæði á tónleikum og í upptökum.

Fyrsta sólóplata Eyþórs, Septim, kom út árið 2021 og næsta sólóplata hans kemur út í haust

Eyþór hefur bæði leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Verkefnahljómsveit Michael Jón Clarke sem og stjórnað báðum hljómsveitunum.

Jón Þorsteinn Reynisson, harmonikuleikari, hóf tónlistarnám sitt í Tónlistarskóla Skagafjarðar hjá Stefáni Gíslasyni, en nam síðar við Konunglega Danska Tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn hjá Geir Draugsvoll og Andreas Borregaard, og lauk þar bakkalárgráðu árið 2015 og meistaragráðu árið 2018. Árið 2022 lauk hann svo Advanced post- graduate diplómu frá sama skóla, sem er hæsta menntunarstig tónlistar í Danmörku.

Undanfarin ár hefur Jón tekið þátt í margvíslegum tónlistarverkefnum, og starfar einnig í nokkrum tónlistarhópum sem reglulega vinna að nýjum verkefnum. Má þar nefna Tríó Mýr, ítríó, Hnoðri í Norðri og Tríó Akureyrar. Hver og einn þessara tónlistarhópa hafa sitt sérkenni í efnisvali, s.s. nútímatónlist, þjóðlagatónlist, dægurtónlist, leikhús eða óperulist. Jón hefur frá 2024 verið stjórnandi Karlakórsins Heimis.

HALLGRÍMSKIRKA – ÞINN TÓNLEIKASTAÐUR