Foreldramorgnar

Á miðvikudagsmorgnum eru foreldramorgnar í kórkjallara Hallgrímskirkju kl. 10-12. Þessar samverur eru fyrir foreldra og börn þeirra og henta þeim sem eru í fæðingarorlofi eða eru heimavinnandi. Tilgangur foreldramorgna eru meðal annars að efla félagsleg tengsl foreldra og barna þeirra. Börn á öllum aldri eru velkomin. Það er alltaf söngstund kl. 10:30, Grétar Einarsson spilar á píanóið.