Hádegistónleikar

Kitty Kovacs organisti Landakirkju í Vestmannaeyjum leikur verk eftir Muffat, Bairstow og Gárdonyi á hádegistónleikum í Hallgrímskirkju 4. júní frá klukkan 12:00 til 12:30.

Hægt er að fá miða við innganginn og á tix.is þegar nær dregur tónleikadegi.

Miðaverð er 2000 krónur, ókeypis fyrir börn, 16 ára og yngri.

Um Kitty Kovács:

Kitty Kovács er fædd í Győr í Ungverjalandi árið 1980 og útskrifaðist árið 2003 frá tónlistardeild Széchenyi István háskólans þar í borg með diplómu í píanó- og kammertónlist. Eftir útskriftina starfaði hún sem meðleikari í Györ og lagði síðan stund á undirleikaranám við Liszt Akademíuna í Búdapest. Á námsárum sínum vann hún í píanókeppnum, m.a. árið 1997 í Salt Lake City og árið 2000 varð hún í 3. sæti í Chopin-keppninni. Kitty kom til Íslands árið 2006 og hefur starfað sem píanókennari og organisti. Frá árinu 2011 hefur hún verið kirkjuorganisti við Landakirkju í Vestmannaeyjum og kennari við Tónlistarskóla Vestmannaeyja. Frá árinu 2012 hefur Kitty stundað orgelnám við Tónskóla þjóðkirkjunnar og vorið 2017 lauk hún kantorsnámi þaðan. Ári síðar lauk hún þaðan námi í einleiksáfanga.