Hádegistónleikar - Eyþór Franzson Wechner, organisti

HÁDEGISTÓNLEIKAR - Eyþór Franzson Wechner, organisti við Blönduóskirkju
Laugardagur 4. maí kl. 12
Miðasala fer fram í Hallgrímskirkju og á https://tix.is/is/event/16803/
Aðgangseyrir 2.500 kr.
 
Eyþór Franzson Wechner fæddist á Akranesi. 14 ára hóf hann orgelnám, í fyrstu undir leiðsögn Úlriks Ólasonar en síðar hjá Birni Steinari Sólbergssyni við Tónskóla Þjóðkirkjunnar og Listaháskóla Íslands. Eftir tvö ár í Listaháskólanum hélt hann til Þýskalands. Við Hochschule für Musik und Theater „Felix Mendelssohn Bartholdy“ Leipzig lauk Eyþór Bachelor of Arts gráðu í orgelleik árið 2012 og Master of Arts gráðu árið 2014 við sama skóla. Helsti kennari hans í Leipzig var Prof. Stefan Engels. Eyþór er nú starfandi organisti Blönduóskirkju og nærsveita og kennir við Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga. Eyþór hefur komið fram á einleikstónleikum á Íslandi, Þýskalandi, Litháen og í Ástralíu.
 
HALLGRÍMSKIRKJA - ÞINN STAÐUR!