HÁDEGISTÓNLEIKAR / Matinée – Björn Steinar Sólbergsson organisti í Hallgrímskirkju
Laugardagur 5. apríl kl. 12 / Saturday April 5th at 12 hrs.
Björn Steinar Sólbergsson orgel / organ
Aðgangseyrir / Admission ISK 2.900
Björn Steinar flytur orgelverk tengd föstutímanum eftir Johann Sebastian Bach.
Björn Steinar Sólbergsson er organisti og tónlistarstjóri Hallgrímskirkju í Reykjavík. Hann kennir jafnframt orgelleik við Tónskóla Þjóðkirkjunnar og Listaháskóla Íslands.
Björn Steinar stundaði tónlistarnám við Tónlistarskólann á Akranesi og í Tónskóla þjóðkirkjunnar í Reykjavík. Meðal kennara hans þar voru Haukur Guðlaugsson og Fríða Lárusdóttir. Framhaldsnám stundaði hann á Ítalíu hjá James E. Göettsche og í Frakklandi við Conservatoire National de Region de Rueil Malmaison hjá Susan Landale þar sem hann útskrifaðist með einleikarapróf í orgelleik (Prix de virtuosité) árið 1986. Hann starfaði sem organisti við Akureyrarkirkju í 20 ár þar sem hann vann að uppbyggingu tónlistarstarfs við kirkjuna.
Björn Steinar hefur haldið fjölda einleikstónleika hér heima, á öllum norðurlöndunum, í Evrópu og norður-Ameríku. Hann hefur leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Sinfóníuhljómsveit Stavanger og The Cleveland Institute of Music Orchestra.
Hann hefur hljóðritað fyrir útvarp og sjónvarp og á geislaplötur, m.a. öll orgelverk Páls Ísólfssonar hjá Skálholtsútgáfunni og orgelkonsert Jóns Leifs hjá útgáfufyrirtækinu BIS
sem hlaut einróma lof gagnrýnenda.
Björn Steinar hlaut Menningarverðlaun DV 1999, Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2001 og var valinn bæjarlistamaður Akureyrar 2002. Listamannalaun 1999 og 2015. Í ár kemur Björn Steinar fram á tónleikum á Íslandi, í Danmörku og Þýskalandi.
Efnisskrá:
Johann Sebastian Bach 1685–1750
Fuge g-moll BWV 578
Herzlich tut mich verlangen BWV 727
Erbarm dich mein, o Herre Gott BWV 721
O Mensch, bewein dein Sünde groß BWV 622
Fantasia und fuge g-moll BWV 542
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN TÓNLEIKASTAÐUR