Hallgrímsmessa í Hallgrímskirkju

Hallgrímsmessa í Hallgrímskirkju
Miðvikudaginn 22. október, 2025, klukkan 20.00
Kór Breiðholtskirkju, stjórnandi Örn Magnússon.

Sungið er messutón úr Graduale frá Hólum (1594) og inn í það fléttað sálmum meðal annars eftir Hallgrím Pétursson og Jón Þorsteinsson píslarvott. Ekkert hljóðfæri er notað við messugjörðina. Forsöngvarar eru úr hópi kórfélaga. Sr. Eiríkur Jóhannsson prédikar og þjónar fyrir altari.

HALLGRÍMSKIRKJA - ÞINN STAÐUR