Messa og sunnudagaskóli 2. sunnudag í aðventu

Messa og sunnudagaskóli kl. 11. 4. desember er annar sunnudagur í aðventu. Prestur Sigurður Árni Þórðarson. Messuþjónar aðstoða. Vox Feminae syngur undir stjórn Hrafnhildar Árnadóttur Hafstað. Organisti Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón barnastarfs: Kristný Rós Gústafsdóttir og Ragnheiður Bjarnadóttir. 

Fyrri ritningarlestur: Lexía: Jes 35.1-2, 5-7, 10
Eyðimörkin og skrælnað landið gleðjist,
öræfin fagni og blómstri.
Eins og dverglilja skal hún blómgast,
gleðjast, gleðjast og fagna. ...
Þá munu augu blindra ljúkast upp
og eyru daufra opnast.
Þá stekkur hinn halti sem hjörtur
og tunga hins mállausa fagnar.
Já, vatnslindir spretta upp í eyðimörkinni
og lækir í auðninni.
Glóandi sandurinn verður að tjörn
og þyrst jörðin að uppsprettum. ...
Hinir endurkeyptu Drottins hverfa aftur
og koma fagnandi til Síonar,
eilíf gleði fer fyrir þeim,
fögnuður og gleði fylgja þeim
en sorg og mæða flýja.

Síðari ritningarlestur: Pistill: Heb 10.35-37
Varpið því eigi frá ykkur djörfung ykkar. Hún mun hljóta mikla umbun. Þolgæðis hafið þið þörf, til þess að þið gerið Guðs vilja og öðlist fyrirheitið. Því að: Innan harla skamms tíma mun sá koma sem koma á og ekki dvelst honum.

Guðspjall: Mrk 13.31-37
Himinn og jörð munu líða undir lok en orð mín munu aldrei undir lok líða. En þann dag eða stund veit enginn, hvorki englar á himni né sonurinn, enginn nema faðirinn. Gætið yðar, vakið! Þér vitið ekki nær tíminn er kominn. Svo er þetta sem maður fari úr landi, skilji við hús sitt og feli þjónum sínum umráðin, hverjum sitt verk. Dyraverðinum býður hann að vaka. Vakið því, þér vitið ekki nær húsbóndinn kemur, að kveldi, á miðnætti, í óttu eða dögun. Látið hann ekki finna yður sofandi þegar hann kemur allt í einu. Það sem ég segi yður, það segi ég öllum: Vakið!“

mynd/sáþ