Opin aðalæfing - MOZART REQUIEM SING-ALONG

Óperudagar í Hallgrímskirkju - OPIN AÐALÆFING
 
Hefur þig alltaf dreymt um að syngja með í Sálumessu Mozarts? Nú er tækifærið!
Sálumessa Mozarts verður flutt á Óperudögum af Hátíðarkór Óperudaga, í samvinnu við Hallgrímskirkju og Norðuróp. Kórstjóri er Steinar Logi Helgason og Lára Bryndís Eggertsdóttir spilar með á orgel. Tónleikarnir eru óvenjulegir að því leyti að áheyrendum er boðið að syngja með í kórunum í „sing along“ stíl og því um einstakt tækifæri að ræða til að syngja þetta fallega verk í miklum fjöldasöng.
Tónleikagestir sem vilja syngja með eru eindregið hvattir til að taka með eigin nótur. Takmarkað upplag verður til láns við dyrnar en þeim sem vilja eignast nótur er bent á Tónastöðina.
 
Flytjendur:
Hátiðarkór Óperudaga
Stjórnandi: Steinar Logi Helgason
Organisti: Lára Bryndís Eggertsdóttir
Bryndís Guðjónsdóttir, sópran
Guja Sandholt, mezzó-sópran
Gissur Páll Gissurarson, tenór
Jóhann Smári Sævarsson, bassi
 
OPIN AÐALÆFING
Laugardaginn 21. október klukkan 10:00-12:00 í Hallgrímskirkju.
Tónleikagestir sem hyggjast syngja með eru hvattir til að mæta!
Aðgangur ókeypis!
 
Miðasala á samsöngstónleikana sunnudaginn 22. október kl. 17 fer fram í Hallgrímskirkju og á https://tix.is/is/event/16156
Miðaverð 2.500 kr.