Orgelsumar í Hallgrímskirkju

Eyþór Franzson Wechner organisti í Blönduóskirkju leikur verk eftir Würzburger, Naujalis, Buxtehude, Elgar, Martini, Alain og Widor á Orgelsumri í Hallgrímskirkju.

Hægt er að nálgast miða við innganginn og á https://tix.is/is/event/13608/

Miðaverð 3000 kr.

Eyþór Franzson Wechner fæddist á Akranesi. 14 ára hóf hann orgelnám, í fyrstu undir leiðsögn Úlriks Ólasonar en síðar hjá Birni Steinari Sólbergssyni við Tónskóla Þjóðkirkjunnar og Listaháskóla Íslands. Eftir tvö ár í Listaháskólanum hélt hann til Þýskalands. Við Hochschule für Musik und Theater „Felix Mendelssohn Bartholdy“ Leipzig lauk Eyþór Bachelor of Arts gráðu í orgelleik árið 2012 og Master of Arts gráðu árið 2014 við sama skóla. Helsti kennari hans í Leipzig var Prof. Stefan Engels. Eyþór er nú starfandi organisti Blönduóskirkju og nærsveita og kennir við Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga. Eyþór hefur komið fram á einleikstónleikum á Íslandi, Þýskalandi, Litháen og í Ástralíu.