Orgelsumar í Hallgrímskirkju - Kjartan Jósefsson Ognibene

Laugardagur 22. júlí kl. 12
Kjartan Jósefsson Ognibene, orgel

Miðasala fer fram við innganginn og á https://tix.is/is/event/15692/ 
Aðgangseyrir 2.500 kr.

Kjartan Jósefsson Ognibene stundar tónlistarnám við Konunglega danska Tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn (DKDM). Hann hélt masterstónleika í Grundtvigs Kirke þann 1. júní sl. þar sem hann hlaut hæstu einkunn og einróma lof fyrir frammistöðuna.

6 ára að aldri hóf hann nám í píanóleik, og haustið 2012 lauk hann framhaldsprófi í píanóleik með ágætiseinkunn, undir handleiðslu Guðrúnar Dalíu Salómonsdóttur frá Tónlistarskóla Garðabæjar. Eftir framhaldsprófið ákvað hann að útvíkka sjóndeildarhringinn og hóf hann þá nám við Tónlistarskóla FÍH hjá Þóri Baldurssyni og lauk Miðprófi í djass píanóleik vorið 2015. Þó annaðist hann klassísku hliðina samhliða djassnáminu en á þessum árum sat hann einnig píanótíma hjá Svönu Víkingsdóttur í sama skóla. Á þessu tímabili annaðist Kjartan píanóleik í Sunnudagaskóla Árbæjarkirkju og má segja að þar hafi hann kynnst því ríka og góða tónlistarstarfi sem á sér stað innan veggja kirkjunnar.

Haustið 2015 hóf hann því nám við Tónskóla Þjóðkirkjunnar á Kirkjuorganistabraut. Þar var hann m.a. undir leiðsögn Björns Steinars Sólbergssonar og Eyþórs Inga Jónssonar, og lauk hann þaðan kirkjuorganistaprófi vorið 2017 og hóf nám haustið 2018 í DKDM. Í Kaupmannahöfn hefur hann hlotið leiðsögn í orgelleik og spuna frá Hans Fagius, Monica Melcova, Yuzuru Hiranaka, Søren Christian Vestergaard og Mads Høck.

Kjartan hefur komið fram á fjölmörgum orgeltónleikum bæði á Íslandi og Danmörku. Fyrir utan tónleika tengda náminu hefur hann leikið einleikstónleika í mismunandi kirkjum allt að klukkutíma að lengd. Árið 2017 lék hann tvenna einleikstónleika; í Vídalínskirkju á vegum Skapandi sumarstarfa Garðabæjar og í Hafnarfjarðarkirkju. Strax á fyrstu önninni í DKDM kom hann fram á sameiginlegum tónleikum með kennara sínum, Yuzuru Hiranaka, í Skt. Johannes kirke í Nørrebro. Sumarið 2021 spilaði hann tónleika í Hallgrímskirkju og sumarið 2022 var honum boðið að halda einleikstónleika í Vejleå kirke í Ishøj. Síðastliðin tvö ár starfaði Kjartan sem aðstoðarorganisti við hina glæsilegu Grundtvigs Kirke, og sem partur af starfinu hélt hann reglulega einleikstónleika þar við góðar undirtektir.