Alla sunnudaga er sunnudagaskóli kl. 11.00 í Hallgrímskirkju. Venjulega hefst sunnudagaskólinn í sameiginlegri guðsþjónustu í kirkjunni en síðan fara börnin með leiðtogum sínum í kórkjallarann eða Suðursalinn og eiga skemmtilega stund saman.
Ýmislegt skemmtilegt er brallað í sunnudagaskólanum á hverjum sunnudegi, t.d. brúðuleikhús, leikir, fjársjóðsleit, bænir, biblíusaga og söngur.
Það er alltaf föndrað eitthvað sem tengist sögu og boðskap dagsins.
Við lok fjölskyldustundarinnar er boðið upp á veitingar í messukaffinu í Suðursalnum. Börn á öllum aldri eru hjartanlega velkomin í barnastarf Hallgrímskirkju!
mynd: sáþ