TRANSLATIONS - HÁDEGISTÓNLEIKAR / Matinée

HÁDEGISTÓNLEIKAR / TRANSLATIONS
Laugardagur 7. júní kl. 12 / Saturday June 7th at 12 hrs.

Arngerður María Árnadóttir orgel / organ
Una Sveinbjarnardóttir fiðla / violin

Miðasala í Hallgrímskirkju og á tix.is
Aðgangseyrir / Admission ISK 2.900

Translations er samfélag um hljóð sem byggir starfsemi sína í kringum orgel- og fiðluverk Unu Sveinbjarnardóttur og Arngerðar Maríu Árnadóttur. Þær búa yfir gríðarmikilli reynslu í tónlistarheiminum sem flytjendur.

Á tónleikunum munu Arngerður og Una flytja verk af plötunni Hik ásamt því að gefa áheyrendum forsmekk að næstu plötu sem nú þegar er í smíðum.

Arngerður og Una hafa báðar mikið unnið með spuna og hafa á síðustu árum fengist æ meira við tónsmíðar samhliða öðrum verkefnum.

Fyrsta plata dúósins var hljóðrituð sumarið 2024. Verkin eru að mestu samin í spuna, með pípuorgel og fiðlu í forgrunni en sérstakir gestir á plötunni eru Skúli Sverrisson og Davíð Þór Jónsson. Platan, sem ber heitið “Hik” kemur út hjá Sono Luminus útgáfufyrirtækinu 25. júní 2025.

Una er fiðluleikari og tónskáld. Hún hefur unnið með Björk, Jóhanni Jóhannssyni og Atla Heimi Sveinssyni auk fjölda annarra listamanna. Una er stofnfélagi Siggi String Quartet og eigin tónsmíðar heyrast á öllum hennar plötum. Sem einleikari og í samstarfsverkefnum og sem konsertmeistari Kammersveitar Reykjavíkur og SÍ leggur hún áherslu á flutning nýrrar tónlistar, sinnar og annarra. Ég sæki hugmyndir í tungumál og ljóð, hrynjandi og hreyfingu orða og setninga sem svo sameinast andrúmsloftinu. Verkin mín eru mínímalísk en samt ekki.
www.unasmusic.com

Arngerður starfar sem tónskáld, organisti, kórstjóri og flytjandi og hefur lokið háskólanámi í bæði tónsmíðum og hljóðfæraleik. Hún er meðlimur í tónlistarhópnum Umbru en þær hafa gefið út fjórar plötur (www.umbra-ensemble.com). Um þessar mundir leggur hún höfuðáherslu á að vinna tónlist fyrir sjónvarp og kvikmyndir en
einnig skrifar hún töluvert fyrir kammerhópa, orgel og kóra.

Ég er undir miklum áhrifum frá ljóðum, sögum og sjónlistum í minni tónsköpun. Verkin mín eru gjarnan ljóðræn og tilfinningaþrungin þar sem ýmiss konar tilraunir með liti, hljóm og áferð eru áberandi.
www.arngerdur.is

HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN STAÐUR!