Kvíði - ótti – uggur og trú

30. janúar 2022
Prédikanir og pistlar, Fréttir, Helgihald
Mynd SÁÞ

Ég varð einu sinni vitni að vopnuðu ráni í sjoppu í borginni Nashville, Tennessee, í Bandaríkjunum. Ég hafði farið á föstudagskvöldi til að kaupa nauðþurftir fyrir sambýlinga mína. Þegar grímuklæddur byssumaður hentist inn um sjoppudyrnar var ég eini viðskiptavinurinn í búðinni. Allt gerðist ofurhratt. Ég átti bágt með að trúa eigin augum og eyrum. Ránsmaðurinn var æstur og augnaráðið tryllingslegt, hendur hans titruðu og skjálfandi byssan voru tákn þess, að maðurinn væri til alls líklegur. Afgreiðslumaðurinn tók fyrir hjartað, staulaðist að peningakassanum og gerði sig líklegan að afhenda grænt dollarabúnt. Allt í einu beindi ræninginn byssunni að mér. Mér fannst hlaupið svo stórt að það minnti helst á haglabyssuhlaup. Svo heyrði ég hann öskra: „Leggstu á gólfið með andlitið niður” Ég lyppaðist niður. Það var mun verra, að geta ekki séð neitt eða fylgst með með framvindunni. Ég vissi ekki, hvort maðurinn væri líklegur til að lóga okkur afgreiðslumanninum eða hvort þetta væri bara venjulegur þjófur, sem vildi valda sem minnstum usla en ná sem mestu fé. Af því ég sá ekkert bjóst ég við hinu versta. Ég fékk sting í aftanverðan hálsinn og hnakka eins og kúla færi brátt í gegnum höfuð mitt. Ránið settist að í mér og þegar ég minnist þess finn ég enn fyrir verknum í hnakkanum og óttanum. En ræninginn fékk féð og hljóp út. Ég staulaðist á fætur og fór að stumra yfir afgreiðslumanninum sem var enn með sáran verk í hjarta og ofsahræddur. Þá sá ég að hann hafði verið með skammbyssu í afgreiðsluborðinu og skildi að hann hafði verið í spennu hvort hann ætti að grípa hana og skjóta.

Hví hræddir?

Texti dagsins er í áttunda kafla Mattheusarguðspjalls. Jesús og hópurinn hans hafði lokið verkum og þeir höfðu lagt í hann. Í stað þess að ganga fóru þeir í bát. Jesús var óttalaus og sofnaði. En veðrið snarversnaði og rokið skóflaði upp öldum. Lærisveinarnir ýttu við meistara sínum og báru upp erindið: „Herra, bjarga þú, við förumst.” En Jesús spurði af hverju þeir væru hræddir: „Hví eruð þið hræddir, þið trúlitlir?” Jesús hastaði síðan á veður og vatn og þeir náðu áttum og landi og undruðust. Báturinn er tákn um stærri veruleika, hluti fyrir heild, hvort sem það varðar friðarmál, umhverfismál eða menningarmál. Við erum öll á sama báti, hvort sem við erum söfnuður á Íslandi, vinahópur á Genesaretvatni, þjóð, mannkyn, jarðakúlan. Við eigum samleið og eigum allt undir, að báturinn farist ekki í einhverju stormviðrinu. Það skiptir síðan öllu máli hver er í bátnum og hver bjargar.

Samfélag óttans

Í aðdraganda þess, að Condoleezza Rice tæki við embætti utanríkisráðherra Bandaríkjanna talaði hún um samfélag óttans. Hún notaði orðin fear society til aðgreiningar frá samfélagi jafnvægis. Allt frá tíma Hermann Göring í þriðja ríkinu hafa margir meðvitað alið á ótta. Í samfélögum samtímans reyna hópar að magna spennu og tortryggni, sem seytlar um æðar menningar og samfélaga. Í öllum átakamálum samtímans eru óttavaldar á fullu. Óttamenning er þeirra kjörlendi. Í máli okkar eru til fjölmörg orð yfir það, sem er ógnvænlegt og vekur með okkur sterkar tilfinningar: Kvíði, ótti, hræðsla, beygur, uggur, angist og skelfing. Tilgangurinn að ræða þessi orð er ekki málfræðilegur eða að leggja í akademískan málgreiningarbelg heldur að tengja guðspjallstextann og við lífið. Til skilningsauka getum við flokkað hræðsluheitin í þrjá flokka. Í fyrsta lagi eru þau, sem vísa til þess sem er hið innra í okkur. Flokkur númer tvo varðar hræðsluefni hið ytra, fyrir utan okkur. Þriðji flokkurinn er síðan það, sem er handan hins þekkta heims og lífs. Ég nota orðið hræðsla um allar víddirnar, en síðan eru einstök hugtök, sem eiga betur við einstaka flokka en aðra. Hræðslu hið innra kalla ég kvíða, en hræðslu við eitthvað hið ytra kalla ég ótta. Þriðji flokkurinn er sérstakur og varðar það sem ég kalla lífsugg eða lífsangist.

Kvíðinn

Hræðsla hið innra er kvíði gagnvart einhverju, sem við ímyndum okkur, einhverju sem ekki er, en gæti orðið, einhverju sem er ekki nálægt eða yfirvofandi, en veldur samt hræðslu. Flughræðsla er dæmi um kvíðaefni. Staðreyndin er sú að það er hættulegra að keyra út á flugvöll en fara með flugvél. Þetta vita flestir, en samt eru margir hræddir. Aðrir eru kvíðnir vegna veikinda eins og krabbameins þó ekkert bendi til slíks. Nærri sjö prósent fólks er haldið kvíða, þ.e. yfir tuttugu þúsund Íslendingar. Enginn smáfjöldi! Kvíðaefni geta orðið svo ógurleg í lífi einstaklinga að þeir verða sjúkir, líf viðkomandi undirlagt og brenglað með ýmsu móti.

Óttinn

Svo er hræðslan, sem beinist að ákveðnum atriðum. Það er óttinn gagnvart því sem beinum ógnum, t.d ofbeldismanni, sem beinir ofsa sínum að þér. Það er líka raunverulegt óttaefni að vera í sama herbergi og stórt, svangt eða hrætt rándýr. Óttinn á sér rætur í reynslu, sem er miðlað í menningu eða sem einstaklingurinn hefur orðið fyrir. Ef tilefni óttans er ógurlegt og yfirvofandi getur fólk fyllst skelfingu. Ef maður er á efstu hæð háhýsis sem er alelda hið neðra, engar flóttaleiðir mögulegar og engar þyrlur nærri, er einboðið að fólk verður hrætt. Þau sem voru á efstu hæðum tvíburaturnanna í New York eftir að flugvélarnar flugu á þá voru í þeirri stöðu. Ef maður er að keyra í hálku og stór strætisvagn kemur skautandi stjórnlaus beint á móti manni, engar bremsur virka og áreksturinn er yfirvofandi, er ekkert einkennilegt að skelfingin verði alger.

Flokkun reynslu

Bátsverjarnir voru hræddir. Kannski var einhver þeirra kvíðinn svona almennt talað. En ástandið var þó meira en kvíðvænlegt. Þeir voru fullir ótta við óveður, sem var svo rosalegt að vanir sjómenn töldu lífi raunverulega ógnað. Þá vöktu þeir Jesú og leituðu aðstoðar. Hann spurði meginspurningar: „Við hvað eruð þið hræddir” – og bætir við – „þér trúlitlir?” Hver eru þá tengsl trúar og hræðslu? Það var ekki kvíði sem ég upplifði í búðarráninu, heldur ótti við ákveðnar aðstæður. En ef mér hefði ekki lánast að vinna úr reynslunni hefði ég getað orðið kvíðinn og óttast að ég lenti í ráni í sjoppum heimsins í hvert sinn sem ég færi í slíka. En það sem varð mér drýgsta umhugsunarefnið í kjölfar þessarar reynslu var að hversu lífið er brothætt og hversu lítið þarf til að manneskjan drukkni í öldugangi daganna og lífið hverfi. Gagnvart háska vakna oft spurningar um hinstu rök, hinar trúarlegu spurningar. Líf okkar gefur tilefni fyrir úrvinnslu – þar er trúarglíman. Ef við náum ekki að þroska með okkur trú geta hræðsluefni valdið skemmdum, t.d. í mynd kvíða og jafnvel alvarlegri sjúkleika.

Uggur og angist

Kvíði og ótti eru ekki trúarleg fyrirbæri, en geta orðið tilefni til trúarlegrar glímu og hafa ýmsar trúarlegar skírskotanir. En ein tegund hræðslu varðar trú. Hún er handan þess, sem við köllum kvíða og ótta. Þá á ég við það, sem stundum hefur verið nefnt uggur, eða angst í erlendum bókum og danski heimspekingurinn Sören Kierkegård notaði til að nefna það, sem er djúprættara en venjulegur ótti við eitthvað. Þessa vídd hræðslunnar getum við kallað líka kallað lífsangist. Í ritum Kirkegård og síðan ýmissa tilvistarspekinga á tuttugustu öld merkir angst allt annað en kvíða eða ótta við veraldarfyrirbæri eins og dýr, hættulegar aðstæður eða fólk. Kierkegård lagði áherslu á, að menn væru frjálsir en gagnvart Guði mistækist þeim alltaf. Menn eru því fullir af ugg, sem er staða hins seka gagnvart hinu guðlega. Uggur er líka hræðsla gagnvart djúpum sjálfsins og tilverunnar, hræðsla gagnvart innræti og merkingu heimsins, dýptum okkar sjálfra, líka myrkrinu, hinu óþekkta og hræðilega í okkur sjálfum og heiminum - því sem er handan við veruleikann eins og við sjáum hann og þreifum á.

Lífsangist

Kvíða- og óttaefni er hægt að sefa án hjálpar trúarinnar. En lífsháski og ótti rífur hins vegar falskt öryggi, strípar okkur, rífur af okkur andlegar skýlur og opinberar nekt okkar. Að okkur læðist í kjölfarið lífsangist, þessi grunur um, að líf okkar sé ekki fyllilega rétt, ekki fullsátt eða fagurt nema eitthvað meira komi til, eitthvað sem sættir andstæðurnar hið innra, streituþætti veraldar og leysir tilvistargáturnar, gerir upp óuppgerð mál, og líka höfuðsyndir mannkyns, sem engir menn megna að leysa. Dæmi um slíkt er þjóðarmorð. Menn í þessum heimi eru í báti sem siglir sjó lífsbaráttu. Við bregðumst við og reynum að túlka reynslu okkar. Þegar verst lætur mögnum við hjátrú, hindurvitni, ofstopa eða hatur á grundvelli hræðslu. Þegar vel fer lærum við af aðstæðum, horfumst í augu við hræðsluna og verðum skynug og vitur. Það er mannlegt að hræðast. Þegar best lætur gerum við okkur grein fyrir hvað eru kvíðaefni, hvað óttaefni og hvað uggur um inntak tilverunnar, okkur sjálf og Guð. Að lifa er stundum háskalegt, en það hræðilegt að sjá bara bylgjurnar og taka ekki eftir honum sem er í bátnum með okkur og getur bjargað. Við þurfum að horfast í augu við hræðsluefni okkar en líka læra að sjá það sem gerir upp angistina. Guð hefur aldrei lofað bátsverjum sínum eilífan Saga class. Okkur hefur aldrei verið lofað, að við munum sleppa við sorg og sjúkdóma. Við höfum engin fyrirheit um, að við sleppum betur en allir aðrir. Það sem gerir gæfumuninn er, að við eigum þann að í bátnum sem segir okkur að við megum sjá hin dýpri rök, megum rífa í hann þegar allt virðist vera að farast og sökkva. Þá tikkar trúin inn, hjálpar í glímunni við kvíða, óttaefni og líka angist hinnar meiri. Þeir sem eru einir á báti, eru trúlitlir, sjá oft tilveruna bara í mynd óveðurs og ógna og leggja því sitt til samfélags óttans. Þau eiga ekki neina algilda vörn gegn vonsku og hættum. Byssuhlaupin verða slíkum að skelfingarmálum sem kalla á ofbeldisviðbrögð, hjátrú og ofsa. En þegar menn gera sér grein fyrir að kvíðaefnin, fár heimsins eru ekki annað en gárur, sem hægt er að hasta á með hjálp skapara himins og jarðar, þá verður auðveldara að glíma við kvíðann, líka óttann sem og lífsangistina. Trúin verður ekki til á grundvelli hræðslunnar. En hræðslan verður stundum tilefni þess að menn fara að leita til trúar og síðan til hans sem er viðfang og höfundur trúarinnar. Þegar menn eru í þeim sporum þá vaknar hann. Þá fá menn tækifæri til að upplifa að kvíðinn getur sefast, óttinn líka og uggurinn dvínar.

Lexía: Jes 40.25-31. Pistill: Rm 13.8-10. Guðspjall: Matt 8.23-27

Íhugun Sigurðar Árna Þórðarsonar í Hallgrímskirkju í helgistund 30. janúar 2022.