02.01.2022
Streymt var frá helgihaldi Hallgrímskirkju á aðfangadegi og jóladag 2021. Hægt er að nálgast þessar athafnir á síðu Hallgrímskirkju á youtube og hlekkirnir eru hér að neðan.
Aðfangadagur kl. 18 - streymi að baki þessari smellu.
Jólanótt. Hlekkur á streymi guðsþjónustu aðfangadagsins kl. 23.30 að baki þessari smellu.
Hátíðarguðsþjónusta á jóladag - streymi að baki þessari smellu.
30.12.2021
Frá og með 2. janúar, 2022, gildir venjulegur opnunartími - þ.e. kl. 10-17.
Allt helgihald og tónleikar falla niður um óákveðinn tíma vegna sóttvarnaaðgerða.
Information: www.hallgrimskirkja.is
The church is open 10-17.
All Services and Concerts have been canceled due to COVID-19.
22.12.2021
Streymt verður á netinu beint frá athöfnum í Hallgrímskirkju um jólin á heimasíðu kirkjunnar og mbl.is. Aðeins 400 komast í hverja messu á aðfangadag og jóladag.
17.12.2021
Glæsilegir fyrstu tónleikar Kórs Hallgrímskirkju 16. desember.
15.12.2021
Það er dásamlegt að vera í Hallgrímskirkju og syngja jólasálmana en þessi jól verður líka steymt beint frá aftansöng aðfangadags kl. 18, frá guðsþjónustunni á jólanótt kl. 23.30 og hátíðarguðsþjónustu á jóladag kl. 14. Á heimasíðunni hallgrimskirkja.is verða birtir hlekkir á streymið. Þau sem vilja vera í kirkjunni eru beðin um að fara í hraðpróf. Upplýsingar um guðsþjónustur, tónleika og aðrar athafnir eru einnig veittar á heimasíðu kirkjunnar. Helgihaldið er dásamlegt og nú er hægt að syngja og njóta ekki aðeins í kirkjunni heldur líka hvar sem er. Gleðileg jól.
15.12.2021
Fyrsta skóflustungan var tekin að Hallgrímskirkju á þessum degi, 15. desember, árið 1945. Sá merki viðburður vakti enga athygli í Reykjavík. Enginn fjölmiðill sendi fulltrúa sinn og því var hvergi greint frá tiltækinu og engin mynd var tekin.
13.12.2021
Senjorítukórinn undir stjórn Ágota Csilla Joó tóku þátt í uppsetningu á leikritinu Ertu hér? og sungu lokalagið í sýningunni
13.12.2021
Leikritið Ertu hér? er sýnt í kórkjallara Hallgrímskirkju. Vinkonurnar Ásrún Magnúsdóttir og Halla Þórlaug Óskarsdóttir breyta kórkjallaranumí leiksvið
10.12.2021
Skírnarfontur Hallgrímskirkju var helgaður og blessaður fyrsta sunnudag í aðventu árið 2001. Tuttugu árum síðar sögðu Leifur Breiðfjörð og Sigríður Jóhannsdóttir, kona hans og samstarfsmaður, frá tilurð fontsins og öðrum listaverkum eftir þau í Hallgrímskirkju. Ávarp þeirra í athöfn eftir guðsþjónustu fyrsta sunnudags í aðventu er hér að neðan. Mikill fengur er að þessari greinargerð þeirra til skilnings á gerð fontsins og verkum þeirra í kirkjunni.