Æði - flæði! Listasmiðjur fyrir börn og unglinga í Hallgrímskirkju

12. janúar 2023
Fréttir

Sköpunargleðin verður alsráðandi í barna-og unglingastarfinu í Hallgrímskirkju á vorönninni. Hallgrímskirkja verður með Æði-flæði listasmiðjur fyrir börn og unglinga í jan. – mars 2023. Flæðið í smiðjunum verður æðislegt, skapandi og skemmtilegt. Það er takmarkað pláss í smiðjurnar og því er skráning nauðsynleg. Smiðjurnar verða sex skipti, boðið er upp á 15 pláss og það koma gestakennarar í smiðjurnar. Biblíusögur verða sagðar í lok hvers flæðis. Það er frítt í smiðjurnar og skráning í þær er óháð búsetu. Í lok smiðjanna verður sýning á Æði-flæði listaverkunum á Æskulýðsdegi Þjóðkirkjunnar 5. mars kl. 11:00 í Hallgrímskirkju. Smiðjurnar verða á þessum tíma:

Kirkjukrakkar í flæði á mán. kl. 14:30-15:30 fyrir börn í 1.-4. bekk.

Æði-smiðja á þri. kl. 15:00-16:00 fyrir börn í 5.-7. bekk.

Æði-gjörningur á þri. kl. 20-21:30 fyrir unglinga í 8. bekk og upp úr. Danskennari heldur utan um hópinn og hann mun vera með gjörning í fjölskylduguðsþjónustu 5. mars.

Skráning í Æði - flæði er HÉR!