Halldór Baldursson

RENNINGUR – MYNDASAGA UM TILURÐ OG SÖGU HALLGRÍMSKIRKJU

Í tilefni 40 ára vígsluafmælis Hallgrímskirkju þann 26. otóber 2026 var listamanninum Halldóri Baldurssyni falið að vinna myndasögu um byggingu og sögu kirkjunnar. Í þessum texta er stiklað á stóru og dvalist við ártöl sem Halldór leggur út af í sögu sinni. Þeim sem vilja fá samfelldara yfirlit um sögu Hallgrímskirkju er bent á bók séra Sigurðar Pálssonar Mínum drottni til Þakklætis – Sögu Hallgrímskirkju, sem út kom árið 2015, og bókina Guðjón Samúelsson húsameistari eftir Pétur H. Ármannson arkitekt sem út kom hjá Forlaginu 2020.

Þremur öldum eftir fæðingu Hallgríms Péturssonar (1614-1674) varð

mikil vakning meðal þjóðarinnar að reisa bæri kirkju til minningar um hann.


Þetta var á umbrotatímum og yfirstíga þurfti ýmsar hindranir. En Hallgríms-

kirkja reis og er í dag lifandi minnisvarði um þekktasta sálmaskáld Íslendinga.


Passíusálmar Hallgríms hafa verið gefnir út oftar en nokkur íslensk bók og

þýddir á mörg erlend tungumál. Arfleifð hans er að finna í allri starfsemi

Hallgrímskirkju. Þar má meðal annars nefna árlega Hallgrímsmessu sem höfð

er á líku formi og ríkti í hans tíð. Um árabil voru Passíusálmarnir lesnir og

sungnir hvern virkan dag á föstunni. Árið 1993 voru þeir lesnir í heild sinni á

föstudaginn langa að frumkvæði Eyvindar Erlendssonar. Sú hefð er enn í

gangi og hefur breiðst út til fleiri kirkna. Hallgrímskirkja fékk það hlutverk af

Sigurbirni Einarssyni biskupi að gefa út erlendar þýðingar á Passíusálmunum


og hefur hún reynt að rækja það eftir föngum. Sóknarnefnd Hallgríms-

safnaðar átti með framlagi frumkvæði að því að Árnastofnun hæfist handa um


vísindalega heildarútgáfu á verkum Hallgríms Péturssonar. Hallgrímskirkja


leggur áherslu á listir, hvort heldur í orðum, tónum, myndum eða fleiri tján-

ingarmátum. Helgihald, fræðslustarfsemi, ýmsar samverustundir og enn fleiri


viðburðir tengjast Hallgrími. Tekið er á móti einstaklingum og margskonar

hópum, börnum sem fullorðnum, Íslendingum og fólki annars staðar frá.

Allt frá því að byggð tók að þróast í Reykjavík hefur Skólavörðuholtið verið

vinsæll áninga- og útsýnisstaður. Þjóðleiðin til Reykjavíkur lá yfir holtið og

niður troðning sem nú heita Skólavörðuholt og Skólavörðustígur. Nöfnin eru

dregin af vörðu sem skólapiltar hlóðu á holtinu 1785 og entist í tæp fimmtíu

ár. Árið 1868 reis þar tvílyftur turn með útsýnispalli eftir uppdrætti Sigurðar

Guðmundssonar málara. Hann varð vinsæll viðkomustaður ferðalanga m.a. af

skemmtiferðaskipum, en þurfti að víkja fyrir styttu Leifs heppna eftir

listamanninn Alexander Stirling Calder. Styttan var gjöf frá Bandaríkjastjórn í

tilefni af 1000 ára afmæli Alþingis og reist árið 1932.

Árið 1924 lagði Guðjón Samúelsson húsameistari ríkisins fram þáhugmynd

að Háborg íslenskrar menningar yrði reist á Skólavörðuholti og þar með ný

dómkirkja. Tveimur árum síðar ákvað dómkirkjusöfnuðurinn að ný kirkja ætti

að vera með sæti fyrir 1200 manns, en íbúatala Reykjavíkur var þá um 21

þúsund manns í einum söfnuði. Frá upphafi var gert ráð fyrir háum turni

vegna áforma um „víðvarp“, eins og útvarpssendingar voru nefndar í þá

daga.

Háborgin reis ekki, en árið 1937 var Guðjóni falið að gera tillögu að

uppdrætti að kirkju á Skólavörðuholti.

Tæpum þremur árum síðar samþykkti Alþingi lög um skiptingu Reykjavíkur í

fjögur prestaköll. Dómkirkjusöfnuði var skipt í tvennt – Dómkirkjusöfnuð og

Hallgrímssöfnuð og Dómkirkjan afhent sínum söfnuði. Í lögunum var jafnframt

lagt til að stór kirkja yrði reist sem fyrst á Skólavörðuholti. Í framhaldinu voru 5

kosnir í fyrstu sóknarnefnd Hallgrímskirkju og gegndi Sigurbjörn Þorkelsson

formennsku.

2. febrúar 1941 voru fyrstu prestar Hallgrímskirkju, Sigurbjörn Einarsson og

Jakob Jónsson, settir í embætti, en hugmyndir um bygginguna voru enn í

mótun. (Sjá lista yfir presta Hallgrímskirkju í lok texta)*. Til að byrja með voru

guðsþjónustur Hallgrímssafnaðar haldnar í Dómkirkjunni, en síðla árs voru

þær færðar í bíósal Austurbæjarskóla. Það samstarf entist uns hægt var að

nýta hluta kirkjubyggingarinnar, árið 1948.

Austurbæjarskólinn var á þessum tíma jafnframt loftvarnarbyrgi svo gluggar

voru huldir sandpokum því 10. maí árið 1941 yfirtók breskt hernámslið

Ísland. Skipton kampurinn var herskálahverfi sem teygði sig yfir svæðið þar

sem Hallgrímskirkja er nú og að Austurbæjarskóla. Bretarnir kölluðu

Skólavörðuholtið oft Skipton-hill, eftir heimabæ margra þeirra í York-skíri á

Bretlandi. Ári síðar tóku Bandaríkin við hervörslunni og víða risu

herskálahverfi sem stóðu allt til ársins 1958.

Í samráði við biskupsembættið var skipuð kirkjubyggingarnefnd sem í sátu 36

manns. Henni var ætlað að mynda samstöðu í þjóðfélaginu um

kirkjubyggingu sem væri annað og meira en venjuleg sóknarkirkja.

Sóknarnefndin bar eftir sem áður alla ábyrgð á undirbúningi og framkvæmd

byggingarinnar.

Kvenfélag Hallgrímskirkju var stofnað 8. mars árið 1942 og hefur frá stofnun

verið skipað öflugum konum sem gefið hafa kirkjunni stórgjafir. Með basar,

merkjasölu, menningarsamkomum og skemmtunum, m.a. útihátíðum í

Hljómskálagarði hafa konurnar aflað mikilvægs fjár til framkvæmda

kirkjubyggingarinnar. Þær efndu líka til bókmenntaupplestra og lögðu

ákveðinn grunn að því öfluga listastarfi sem hefur verið einkennandi fyrir

Hallgrímskirkju. Fyrsti formaður þess var Guðrún Jóhannesdóttir.

Sóknarnefndin og kvenfélagskonur ýttu á ríkisstjórnina eins og hægt var að fá

setuliðið fært burt af kirkjulóðinni svo hægt væri að hefja bygginguna sem

fyrst. Það bar ekki árangur fyrr en seint um síðir.


Um mitt ár 1942 voru tvö líkön af væntanlegri kirkju lögð fyrir

sóknarnefndina. Þau voru bæði eftir Guðjón Samúelsson og var annað þeirra

valið til framkvæmda. Í frétt í dagblaðinu Vísi stóð: „Hallgrímskirkja í Reykjavík

verður veglegasta bygging landsins. Hún á að vera eign allra landsmanna“. Í

byggingarsjóð bárust opinber framlög en fyrst og fremst frjáls framlög. Einnig

var efnt til happdrættis fyrir kirkjubygginguna.

Langvarandi þæfingur milli sóknarnefndar, bæjarstjórnar og

byggingarnefndar Reykjavíkur tafði fyrir að hægt væri að hefjast handa. Efnt

var til útiguðþjónustu á Skólavörðuholti í ágúst árið 1944 og ákveðið var að

byrja á byggingu kapellunnar undir kór kirkjunnar. Loks fékst byggingarleyfi

í nóvember en áfram urðu þrálátar tafir vegna teikninga og tímasetninga.

Nokkrir herskálar fengust fjarlægðir af kirkjulóðinni.

Loksins var hægt að taka fyrstu skóflustunguna 15. desember árið 1945 í

snjó og frosti. Erfitt reyndist að afla efnis í bygginguna á haftatímum, en

þremur árum síðar, 4. desember árið 1948 var kapellan vígð til

guðþjónustuhalds. Velunnarar gáfu steindan glugga sem nýttur var sem

altaristafla, einnig stóran Kanaríeyjapálma sem stækkað hefur og dafnað líkt

og starfsemi kirkjunnar til okkar daga. Listamaðurinn Einar Jónsson færði

kirkjunni stórt Kristslíkneski, sem eins og pálminn hefur flust milli

byggingaáfanga.

Framkvæmdir gengu áfram skrykkjótt því ítrekað var sóknarnefndinni synjað

um leyfi til að halda framkvæmdum áfram. Guðjón Samúelsson lést

árið 1950 og var þá embætti húsameistara falið að annast alla teiknivinnu

vegna framkvæmdanna.

LOKSINS, um mitt ár 1956 var byggingaleyfi veitt og byrjað var að slá upp

fyrir veggjum kirkjuskipsins næsta ár. Hermann Þorsteinsson tók sæti í

sóknarnefnd árið 1960. Hann gengdi mikilvægu stjórnunar- og

baráttuhlutverki við uppbyggingu Hallgrímskirkju.

Fyrsta guðþjónustan í hálfbyggðu kirkjuskipinu, og varla það, var haldin

14. október árið 1962. Búið var að steypa gólfið og veggirnir risnir til hálfs.

Kirkjugestir leituðu skjóls undir vinnupöllum í úrhellis rigningu. Ákveðið var

að bíða með frekari uppbyggingu skipsins en hefjast handa við turninn

ásamt norður og suður vængjum hans.

Löngum voru skiptar skoðanir um bygginguna.

Harðorðaðar deilur um mátti sjá í fjölmiðlum og efnt var til fjölmenns

mótmælafundar árið1964 um áframhaldandi uppbyggingu Hallgrímskirkju.

En kirkjan átti sér einnig meðmælendur og áfram hélt saga hennar.

Árið 1965 var turninn orðinn 12 metrar og búið að steypa norður- og

suðurálmurnar. Þremur árum síðar var turnbyggingunni lokið. Hæð turnsins

er 70,5 m og ofan á honum 4 m hár kross. Ári síðar var aftur hægt að klífa

turn á Skólavörðuholti þegar Hallgrímskirkjuturn var opnaður almenningi til

að njóta útsýnisins. Til varð tekjuleið til að styðja við frekari uppbyggingu og

viðhald.

Árið 1971 voru settar upp 3 stórar kirkjuklukkur sem fengu nöfnin

Hallgrímur og Guðríður í höfuðið á eiginkonu Hallgríms og Steinunn sem var

nafn dóttur þeirra sem lést ung. Klukkurnar voru gjöf frá SÍS, Sambandi

íslenskra samvinnufélaga. Við bættust líka klukknaspil og

samhringingarklukkur sem voru gjafir fjölmargra einstaklinga og fyrirtækja.

Árið 1974 er vert að minnast á tvennt að minnsta kosti. Um sumarið var

haldin einstök guðþjónusta í hálfbyggðu kirkjuskipinu. Jón Sigurbjörnsson

leikari flutti kviðu um Hallgrím Pétursson eftir séra Jakob Jónsson og flutt var

tónlist eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Söngfólk úr Reykjavíkurprófastsdæmi

söng við undirleik félaga úr Sinfóníuhljómsveit Íslands. Kórfélagar stóðu á

vinnupöllum í kirkjuskipinu og hamarshöggum frá vinnupöllunum var fléttað

inn í flutninginn á táknrænan hátt. Fjórir prestar þjónuðu fyrir altari.

Og í október, á 300 ára ártíð Hallgríms, var ný kapella vígð i nýinnréttaðri

suðurálmu turnsins. Við það tækifæri var hornsteinn kirkjunnar lagður.

Altaristafla kapellunnar var málverk eftir listamanninn Stefan Viggo

Pedersen, sem danskur vinur hafði gefið kirkjunni árið 1964. Norski

presturinn og velunnari Hallgrímskirkju, Harald Hope, hafði sent steinflísar á

allt kirkjugólfið og trjávið í þak kirkjunnar. Það var gjöf frá Noregi sem keypt

var fyrir söfnunarfé að hans tilstuðlan.

Árið 1982 urðu merk tímamót þegar Hörður Áskelsson var ráðinn ráðinn

organisti og kórstjóri kirkjunnar. Hann varð frumkvöðull í sögu kirkjutónlistar

á íslandi og var mikill hvatamaður að kaupum á konsert-pípuorgelinu eftir

Johannes Klais sem tekið var í notkun tíu árum síðar. Hörður stofnaði

Mótettukór Hallgrímskirkju með mikla áherslu á fagmennsku. Fljótlega var

Listvinafélag Hallgrímskirkju öflugt stuðningsfélag fjölbreytts listastarfs við

kirkjuna. Listvinir styrktu starfsemina með félagsgjöldum og fengu afslátt á

viðburði. Listvinafélag Hallgrímskirkju skilaði metnaðarfullu starfi í kirkjunni í

tæp 40 ár eða til ársins 2021 er Hörður lét af störfum. Árið 1996 stofnaði

Hörður einnig Schola Cantorum,12-18 manna kammerkór fagmanna sem

sérhæfðu sig í endurreisnartónlist, barrokktónlist, samtímatónlist og á

frumflutningi verka eftir íslensk tónskáld.


Árið 1985, tæpu ári áður en Hallgrímskirkja var vígð, var Frobenius orgelið

vígt í suður-turnálmunni. Það var flutt í kirkjuskipið fyrir vígslu kirkjunnar og

þjónaði þar sem aðalorgel kirkjunnar fyrstu sex árin. Það var smíðað af hinu

virta danska fyrirtæki Th. Frobenius & Sønner og var upphaflega hannað sem

meðalstórt tíu radda kórorgel með skýran norrænan nýbarokkotón. Í ágúst

2023 var orgelið tekið niður, flutt aftur til Danmerkur þar sem það var

endurbyggt og stækkað meðal annars í 20 radda orgel. Við

endurbygginguna opnuðust nýjir mögueikar á tónleikahaldi, svo sem

flutningum á verkum sem skrifuð eru fyrir tvö orgel. Það var endurvígt sem

liður í 350 ára dánarártíð Hallgríms Péturssonar árið 2024. Í dag er það

annað tveggja aðalorgela kirkjunnar og er oftast nefnt kórorgelið til

aðgreinngar frá stóra Frobenius orgelinu.


Turn Hallgrímskirkju fékk mikivægt hlutverk þegar sögulegur fundur

þjóðarleiðtoganna Mikhails Gorbasjevs og Ronalds Reagans fór fram í Höfða

11. október 1986, því erlendar sjónvarpsstöðvar kepptust um að fá

einkaleyfi til að nýta hann til beinna útsendingar.


Þann 26. október 1986, tæpu 41 ári frá fyrstu skóflustungu, var

Hallgrímskirkja vígð við hátíðlega athöfn að viðstöddum tæplega 2.000

gestum, innlendum sem erlendum. Þar á meðal stór hluti presta landsins.

Auk Harðar Áskelssonar, organista og kórstjóra, voru hljóðfæraleikarar

félagar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands og Málmblásarasveit Tónlistarskólans í


Reykjavík. Mótettukórinn og félagar úr Kór Hallgrímskirkju sungu. Allir

sálmar voru eftir Hallgrím Pétursson við gömul sálmalög sem Þorkell

Sigurbjörnsson útsetti. Biskup Íslands, Pétur Sigurgeirsson, prédikaði, forseti

Íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir ávarpaði gesti og átta prestar þjónuðu við

altarisgöngu.

Þegar vígslu áfanga kirkjunnar var náð var ljóst að 35% byggingarkostnaðar

kom frá opinberum sjóðum, en framlög safnaðarins og velunnara hans,

einstaklinga, félaga og fyrirtækja, taldi 65% kostnaðar.

Á fyrsta starfsári nývígðrar kirkju var efnt til veglegrar Kirkjulistahátíðar á

vegum Hallgrímskirkju og Listvinafélags Hallgrímskirkju með megináherslu á

tónlist og myndlist en einnig leiklist og dans. Kirkjulistahátíðirnar urðu alls

15, oftast haldnar annað hvert ár á móti Listahátíð í Reykjavík. Síðasta

Kirkjulistahátíðin var haldin árið 1992.

Mikilvægur áfangi í sögu kirkjunnar varð árið 1992 þegar konsert

pípuorgelið eftir Johannes Klais var tekið í notkun. Það er langstærsta

orgelið á Íslandi og rómað meðal organista víða um heim fyrir gæði og

fjölbreytt raddval. Klaisorgelið er notað við helgihald kirkjunnar og

tónleikahald. Einnig er eftirsótt að fá að leika á það og hljóðrita í

kirkjunni. Það fellur einnig einkar vel að rými kirkjunnar meðal annars fyrir

tilstuðlan Andrésar Narfa Andréssonar arkitekts. Í orgelinu eru 5.275 pípur,

mismunandi að lengd, þvermáli, efni, lögun, byggingu, tónhæð og

hljómeiginleikum, lengsta pípan um 10 metrar. Allt frá tilkomu þess er

orgelið hjartað í árlegri hátíð, Orgelsumri í Hallgrímskirkju, sem haldin er af

miklum metnaði í júlí og ágúst ár hvert. Færanlega orgelborðið hefur aukið

notkunarmöguleika orgelsins verulega, bæði hvað varðar tónleika- og

helgihald. Orgelið var að mestu fjármagnað með gjöfum, meðal annars

bauðst fólki að kaupa gjafabréf sem staðfesti eign viðkomandi á ákveðinni

pípu. Orgelsjóðurin er enn starfræktur því orgelið krefst reglulegrar

hreinsunar svo það standi undir nafni.

Árið 1993 var prédikunarstóllinn vígður. Hönnuður hans er arkitektinn

Andrés Narfi Andrésson, en glermyndirnar eru eftir listamanninn Leif

Breiðjörð. Í þeim má meðal annars sjá rithönd Hallgríms Péturssonar

Kirkjunni hefur í gegnum tíðina verið ánafnað ýmsum myndlistarverkum og

hefur einnig keypt verk. Árið 1995 var Listasafn Hallgrímskirkju stofnað af

sóknarnefnd Hallgrímskirkju, Kvenfélagi Hallgrímskirkju og Listvinafélagi

Hallgrímskirkju til þess að halda utan um safneignina. Þóra Kristjánsdóttir

listfræðingur var formaður stjórnar listasafnsins fyrstu árin. Nú er ljóst að

uppfæra þarf stofnskrá safnsins og aðlaga að breyttum kröfum og

aðstæðum. Sú endurskoðun stendur yfir.

Árið 1999 var steindur gluggi eftir Leif Breiðfjörð, sem er minningarfjöf,

settur upp ofan við inngang kirkjunnar. Gluggann nefndi listamaðurinn Dýrð,

vald, virðing. Neðst má sjá Hallgrím Pétursson með bók og stílvopn, en efst

eru grísku bókstafirnir alfa og omega, tákn upphafs og endis með tilvísun í

orð opnberunarbókarinnar. Sú stefna hefur verið mótuð að í kirkjuskipinu fái

dagsbirtan og sólarljósið að vera í aðalhlutverki.

Tveimur árum síðar, árið 2001 var nýr skírnarfontur vígður, einnig

hugarsmíð Leifs Breiðfjörðs, gefinn af Kvenfélagi kirkjunnar. Hann er í stíl við

kirkjuna gerður úr stuðlabergi og heilum, tærum glerskúlptúr ásamt

innfelldum textum eftir Hallgrím Pétursson.

Tíu árum eftir vígslu kirkjunnar hóf Reykjavíkurborg vinnu við frágang

Skólavörðuholtsins, eftir samninga við sóknarnefnd sem Jóhannes Pálmason

formaður leiddi. Í samvinnu við Hallgrímskirkju var farið í það viðamikla

verkefni að hanna allt umhverfi Hallgrímskirkju og var Hallgrímstorg einn

áfangi þess. Hönnuðir verkefnisins voru Ragnhildur Skarphéðinsdóttir

landslagsarkitekt og Ögmundur Skarphéðinsson arkitekt. Ragnhildur sótti

hugmyndina að hellulögninni á torginu til keltneskra kirkjukrossa. Þau felldu

styttuna af Leifi heppna í flöt torgsins með því að útbúa skipsform undir og

utanvið neðsta hluta stöpulsins. Aðra útfærslu krossformsins má svo sjá

sunnan við kirkjunna.

Árið 2005 var sú nýjung tekin upp í Hallgrímskirkju að velja messuþjóna úr

hópi sóknarbarna að frumkvæði séra Jóns Dalbús Hróbjartssonar og hefur

það sett svip sinn á allt helgihald síðan.

Björn Steinar Sólbergsson var ráðinn organisti í Hallgrímskirkju árið 2006

og tónlistarstjóri kirkjunnar frá 2021. Hann kemur reglulega fram sem

einleikari hér heima og erlendis. Á 40 ára vígsluafmælisári Hallgrímskirkju


fagnar Björn Seinar einnig 40 ára afmæli sem organisti hjá Þjóðkirkjunni, 20

árum við Akureyrarkirkju og 20 við Hallgrímskirkju. Af því tilefni kom út

platan Íslensk orgeltónlist fyrr á þessu ári þar sem hann spilar fjölbreytt úrval

íslenskrar orgeltónlistar á Klaisorgelið. Platan var einnig gefin út undir

nafninu Icelandic Organ Music á helstu streymisveitum.


Árið 2010, (28. mars) var tvívængja bronshurð í aðalinngangi

Hallgrímskirkju helguð af biskupi Íslands Karli Sigurbjörnssyni, en höfundur

hennar er listamaðurinn Leifur Breiðfjörð. Rausnarlegar gjafir einkaaðila

gerði framkvæmdina mögulega. Á framhlið hurðarinnar er lágmynd með

táknum úr kirkjulistasögu. Umgjörð myndarinnar er fjórblaðaform sem

kallast á við sams konar form í steinda glugganum ofan við hurðina.

Bakgrunnur táknanna er rauður litur glermósaíks sem vísar í blóð Krists,

elsku hans og fórn. Ofan við hurðina er texti í sjö línum, inngönguvers eftir

Hallgrím Pétursson

Með bronshurðinni var byggingu kirkjunnar og frágangi utandyra að mestu

leyti lokið en við tóku viðvarandi viðgerðir og endurbætur.

Starfsemin blómstraði sem aldrei fyrr og á þessum tíma var Hallgrímskirkja

orðin fjölsóttasta kirkja landsins.

Eins og áður hefur komið fram hafa listir verið nátengdar starfinu í

Hallgrímskirkju frá upphafi, svo sem orð-, tón-, mynd-, leik- og danslist.

Árið 2015 voru Jólin hans Hallgríms fyrst sett upp í kirkjunni. Það er

leiksýning sem byggð er á sögu Steinunnar Jóhannesdóttir og er nú orðinn

árlegur viðburður sem sóttur er af þúsundum skólabarna á hverri aðventu.

Árið 2019 var ný ensk þýðing Passíusálmanna (Gracia Grindal) gefin út með

myndskreytingum úr Hallgrímskirkju í samvinnu við Skálholtsútgáfuna.

Dönsk þýðing Björns Sigurbjörnssonar var endurútgefin í sama broti 2024. Í

tilefni 40 ára vígsluafmælis verða Passíusálmarnir gefnir út í 4. sinn á vegum

Hallgrímskirkju á frummálinu, með samantekt úr píslarsögunni ásamt

orðskýringum og ýmsum skrám.

Frá árinu 2019 er hægt að sækja kvöldmessu í Hallgrímskirkju. Það er opinn

og kyrrlátur vettvangur fyrir þá sem vilja dýpka trúarlega upplifun sína, finna

ró og leita í annað form en heðbundið helgihald. Tónlist og lýsing er

óhefðbundin. Kvöldmessur eru í boði síðasta fimmtudag hvers mánaðar yfir

vetrarmánuðina.

Árið 2021 var Kór Hallgrímskirkju stofnaður og Steinar Logi Helgason ráðinn

kórstjóri. Hann starfar einnig sem organisti og tekur virkan þátt í dagskrá

Orgelsumars ár hvert. Kórinn telur nú um 70 manns og hefur frá stofnun

tekið þátt í helgihaldi í Hallgrímskirkju ásamt því að sinna tónleikahaldi og

upptökum. Hann leggur mikið upp úr flutningi á íslenskri kórtónlist og

stuðlar að nýsköpun með frumflutningi nýrra tónverka, sem mörg hafa verið

skrifuð sérstaklega fyrir kórinn. Hann hefur átt í gjöfulu samstarfi við

Barokkbandið Brák, Kammersveit Reykjavíkur og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Í

tilefni 40 ára vígsluafmælis Hallgrímskirkju verður fyrsta breiðskífa Kórs

Hallgrímskirkju, In caelo et in terra, gefin út 25. október 2026.

Árið 2022 var í Hallgrímskirkju sett upp ný lýsing innanhúss og utan sem

hönnuð var af íslenska lýsingarfyrirtækinu Liska. Gamli ljósabúnaðurinn var


kominn til ára sinna og eyddi töluverðri orku. Í staðinn kom hágæða LED-

lýsing sem gefur ótal möguleika til lýsingar. Kerfið inniheldur um 60


forritaðar lýsingarstillingar sem breytast sjálfkrafa eftir dagsbirtu, árstíðum

og ólíkum viðburðum í kirkjunni, svo sem messum, tónleikum eða

kyrrðarstundum. Auk mismunandi hvítra lita getur kerfið líka beitt litum svo

hægt er að lýsa kirkjuna upp í öllum regnbogans litum við sérstök tækifæri.

Lýsingin hefur þegar unnið til nokkurra alþjóðlegra verðlauna meðal annars

Award of Distinction fyrir innilýsinguna, en það eru æðstu heiðursverðlaun


dómnefndarinnar hjá Samtökum lýsingarverkfræðinga í N-Ameríku

(Illuminating Engineering society).


Skólavörðuholtið og Hallgrímskirkja hafa löngum verið miðpunktur eða

upphafspunktur ýmissa hátíða og skrúðgangna, svo sem 17. júní, Gay Pride í

ágúst og kvennabaráttugöngur 24. október. Frá upphafi Vetrarhátíðar í

Reykjavík árið 2002 hefur Hallgrímskirkja verið virkur þátttakandi. Einstæður

arkitektúr kirkjunnar hefur þótt kjörin „strigastærð“ fyrir stórbrotna ljóslist

sem varpað hefur verið á framhliðina þar sem ljósadýrðin nýtur sín nokkrar

myrkar febrúarnætur ár hvert.


Af framsýni, með þrautseigju og metnaðarfullu starfi fjölda manns hefur

Hallgrímskirkja staðfest mikilvægi sitt sem merkur minnisvarði um Hallgrím

Pétursson.

... og eins og letrað er á inngöngudyr kirkjunnar KOMIÐ TIL MÍN, býður

kirkjan ykkur velkomin.