Sunnudagur 31. maí 2026 – Þrenningarhátíð í Hallgrímskirkju

28. maí 2026

Þrenningarhátíð í Hallgrímskirkju: Opin sálmaæfing fyrir messu kl. 10:30. Messa kl. 11:00. Sunnudagaskóli og aðalfundur Hallgrímssafnaðar fer fram kl. 12:45 í Norðursal að messu lokinni.

Sunnudagur 31. maí 2026
Þrenningarhátíð í Hallgrímskirkju

Opin sálmaæfing verður kl. 10:30.

Björn Steinar Sólbergsson, organisti kirkjunnar, verður við orgelið og kynnir sálma messunnar ásamt félögum úr Kór Hallgrímskirkju.

Er Guð í þrennu lagi?
Messa kl. 11:00
Sr. Eiríkur Jóhannsson prédikar og þjónar fyrir altari.

Messuþjónar aðstoða.
Félagar úr Kór Hallgrímskirkju leiða söng.

Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.

Riddarar kærleikans
Sunnudagaskólinn er á sínum stað
Umsjón: Ragnheiður Bjarnadóttir og Lára Ruth Clausen

Aðalfundur Hallgrímssafnaðar verður að messu og messukaffi loknu kl. 12:45 í Norðursal Hallgrímskirkju.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf og tillögur um breytta skipan sóknarnefndar. Tillögurnar miða að því að auka festu og marksækni í stjórnun vegna sívaxandi umsvifa og anna í kirkjustarfi, framkvæmdum og ferðaþjónustu.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu kirkjunnarað baki þessarar SMELLU

HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN STAÐUR