Orgeltónleikar á jólum
Dags:
26.desember 2025 -
Klukkan:
17:00

Orgeltónleikar á jólum
26. desember 2025 kl. 17 í Hallgrímskirkju
Organisti er Björn Steinar Sólbergsson
Miðasala fer fram í Hallgrímskirkju og á tix.is
Aðgangseyrir er 3.900 kr.
Verið öll velkomin á hátíðlega jólastund á annan í jólum í Hallgrímskirkju þegar Björn Steinar Sólbergsson flytur glæsilega og fjölbreytta efnisskrá tengda jólunum eftir Bach, D’Aquin, Guilmant og Vierne. Einnig frumsamin íslensk jólatónlist sem flutt verður í fyrsta sinn opinberlega.
Á tónleikunum verða frumflutt tvö verk eftir Hrafnkel Orra Egilsson. Fantasía yfir þjóðlagið „Með gleðiraust og helgum hljóm“ og Chaconne yfir þjóðlagið „Hátíð fer að höndum ein“ . Á efnisskránni er einnig Pastorale yfir jólasálminn „Nóttin var sú ágæt ein“ (2022) eftir sama tónskáld.
Tónleikarnir eru hátíðlegir og bjóða upp á fullkomna jólastemningu, kyrrð og fegurð.
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN STAÐUR UM HÁTÍÐIRNAR