Syngjum jólin inn / Almennur söngur, kórsöngur og lestrar
20.desember 2026 -20.desember 2026
Klukkan:
17:00

SYNGJUM JÓLIN INN!
Verið velkomin í almennan söng, kórsöng og lestra sunnudaginn 20. desember klukkan 17:00 í Hallgrímskirkju.
Aðgangur er ókeypis og öll velkomin meðan húsrúm leyfir.
Að syngja jólin inn er vel þekkt á Englandi og víða á Norðurlöndunum. Þar gefst kirkjugestum kostur á að undirbúa jólahátíðana með því að syngja marga af ástsælustu jólasálmunum auk þess að hlýða á fallegan kórsöng.
Kór Hallgrímskirkju og Kór Menntaskólans við Hamrahlíð sameina að þessu sinni krafta sína, syngja og leiða almennan söng undir stjórn Steinars Loga Helgasonar og Hreiðars Inga Þorsteinssonar. Björn Steinar Sólbergsson og Matthías Harðarson leika á orgel kirkjunnar.
Prestar safnaðanna taka þátt í tónleikunum með lestrum úr ritningunni.
Hallgrímskirkja - Þinn staður í desember