1. júní, Kirkjulistahátíð sett, Finnbogi og Mysterium

01. júní 2019







Kirkjulistahátíð verður sett laugardaginn 1. júní kl. 15. Kanadíski orgelvirtúósinn Isabella Demers leikur verk eftir J.S. Bach og Duruflé. Trompetleikararnir Jóhann Nardeau og Baldvin Oddsson leika hátíðarverk með Birni Steinari Sólbergssyni, íslenskum orgelvirtúós og orgelleikara Hallgrímskirkju. Klukkuspilskonsert inni og úti. Ávörp verða flutt en síðan verður sýning Finnboga Péturssonar í Hallgrímskirkju opnuð.

Kl. 17 verða upphaftónleikar kirkjulistahátíðar 2019. Þá verður frumflutt óratórían Mysterium eftir Hafliða Hallgrímsson fyrir tvo kóra, hljómsveit, tvö orgel og fjóra einsöngvara frumflutt. Flytjendur: Mótettukór Hallgrímskirkju, Schola cantorum, Herdís Anna Jónasdóttir sópran, Hanna Dóra Sturludóttir alt, Elmar Gilbertsson tenór, Oddur A. Jónsson bassi og hljómsveit. Stjórnandi Hörður Áskelsson. Isabelle Demers leikur tvo þætti úr L´Ascension eftir O. Messiaen við upphaf tónleikanna. Miðasala við innganginn.