Aðalfundur Listvinafélags Hallgrímskirkju á Siðbótardaginn miðvikudaginn 31.október nk. kl. 17

31. október 2018
Aðalfundur Listvinafélags Hallgrímskirkju vegna 35. starfsárs félagsins verður haldinn í suðursal Hallgrímskirkju á Siðbótardaginn, miðvikudaginn 31. október nk. kl. 17.


Þar verða reikningar 35. starfsársins bornir upp til samþykktar og boðið verður upp á léttar veitingar og umræður um starf félagsins.
Einnig verða kosnir tveir nýir fulltrúar í stjórn Listvinafélagsins og einn varamaður. 
Þá verður borin upp tillaga að hækkun árgjalds Listvinafélagsins en árgjaldið hefur verið óbreytt um margra ára skeið.
Allir félagar í Listvinafélagi Hallgrímskirkju eru hjartanlega velkomnir og hvattir til að mæta.