Aftansöngur á aðfangadag á sjónvarpsstöðinni Hringbraut

23. desember 2020


Aftansöng frá Hallgrímskirkju verður sjónvarpað á Hringbraut kl. 18 á aðfangadag og endursýndur á tveggja tíma fresti næsta sólarhringinn.
Hér er hlekkur á streymi frá Hringbraut.

Hallgrímskirkja
Aftansöngur
Aðfangadagskvöld 2020

Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt
Sr. Sigurði Árna Þórðarsyni og Kristnýju Rós Gústafsdóttur.

Mótettukór Hallgrímskirkju, stjórnandi er Hörður Áskelsson.

Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.

Messuskrána má nálgast hér: 2020 Aftansöngur

Lexía: Míka 5.1–3
En þú, Betlehem í Efrata, ein minnsta ættborgin í Júda, frá þér læt ég þann koma er drottna skal í Ísrael. Ævafornt er ætterni hans, frá ómunatíð. Því verður þjóðin yfirgefin þar til sú hefur fætt er fæða skal. Þá munu þeir sem eftir lifa ættmenna hans snúa aftur til Ísraels lýðs.
Hann mun standa sem hirðir þeirra í krafti Drottins, í mætti nafns Drottins, Guðs síns, og þeir óhultir verða. Þá munu menn mikla hann allt til endimarka jarðar.

Guðspjall: Lúkas. 2.1–14

En það bar til um þessar mundir að boð kom frá Ágústusi keisara, að skrásetja skyldi alla heimsbyggðina. Þetta var fyrsta skrásetningin og var gerð þá er Kýreníus var landstjóri á Sýrlandi. Fóru þá allir til að láta skrásetja sig, hver til sinnar borgar. Þá fór og Jósef úr Galíleu frá borginni Nasaret upp til Júdeu, til borgar Davíðs, sem heitir Betlehem, en hann var af ætt og kyni Davíðs, að láta skrásetja sig ásamt Maríu heitkonu sinni sem var þunguð. En meðan þau voru þar kom sá tími er hún skyldi verða léttari. Fæddi hún þá son sinn frumgetinn, vafði hann reifum og lagði hann í jötu af því að eigi var rúm fyrir þau í gistihúsi. En í sömu byggð voru hirðar úti í haga og gættu um nóttina hjarðar sinnar. Og engill Drottins stóð hjá þeim og dýrð Drottins ljómaði kringum þá. Þeir urðu mjög hræddir en engillinn sagði við þá: „Verið óhræddir, því, sjá, ég boða yður mikinn fögnuð sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs. Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna ungbarn reifað og liggjandi í jötu.“ Og í sömu svipan var með englinum fjöldi himneskra hersveita sem lofuðu Guð og sögðu: Dýrð sé Guði í upphæðum og friður á jörðu og velþóknun Guðs yfir mönnum.

Gleðileg jól