Alþjóðlegt orgelsumar að hefjast!

20. júní 2017
Alþjóðlegt orgelsumar hefur unnið sinn sess sem árlegur sumarviðburður í Hallgrímskirkju og í ár er þetta 25. árið í röð sem það er haldið. Ávallt gleði og tilhlökkun fyrir gesti, innlenda sem erlenda sem vilja heyra orgelhljóma og sönghljóma. Einnig í ár er tilefni til þess að fagna 25 ára afmælisári Klais orgelsins sem var vígt í desember 1992. Dagskráin verður í tölvutæku formi þegar nær dregur en eru nánari upplýsingar inn á vef listvinafélagsins.



Vikan 19. - 25. júní eru tónleikarnir sem hér stendur. 

Miðvikudaginn 21. júní kl. 12

Hálftíma hádegistónleikar með kammerkórnum Schola cantorum. Aðgöngumiðar eru seldir klukkustund fyrir tónleika í anddyri kirkjunnar og kosta kr. 2500.

 

Fimmtudaginn 22. júní kl. 12

Hálftíma orgeltónleikar í hádeginum með Baldvini Oddsyni trompet og Elísabet Þórðardóttur orgel. Aðgöngumiðar eru seldir klukkustund fyrir tónleika í anddyri kirkjunnar og kosta kr. 2000.

Frítt er fyrir meðlimi í Listvinafélagi Hallgrímskirkju. Miðasala er einnig á midi.is.

 

Laugardaginn 24. júní kl. 12

Björn Steinar Sólbergsson, organisti í Hallgrímskirkju er svo helgarorganistinn. Hann leikur í hálfa klukkustund. Aðgöngumiðar eru seldir klukkustund fyrir tónleika í anddyri kirkjunnar og kosta kr. 2000.

Frítt er fyrir meðlimi í Listvinafélagi Hallgrímskirkju. Miðasala er einnig á midi.is

 

Sunnudaginn 25. júní kl. 17

Björn Steinar Sólbergsson leikur á orgel. Tónleikarnir eru í eina klukkustund. Aðgöngumiðar eru seldir klukkustund fyrir tónleika í anddyri kirkjunnar og kosta kr. 2500.

Frítt er fyrir meðlimi í Listvinafélagi Hallgrímskirkju. Miðasala er einnig á midi.is.