Alþjóðlegt orgelsumar hefst laugardaginn 18. júní

16. júní 2016
Ungstirni, glænýtt orgelverk og háleynilegt prógramm



Ungstirni, frumflutningur á nýju, íslensku orgelverki og háleynilegt prógramm eru á dagskrá Alþjóðlega orgelsumarsins í Hallgrímskirkju 2016. Þetta er 24. árið sem orgelsumarið er haldið og verður í ár boðið upp á heila 29 orgeltónleika og níu kórtónleika. Hið stórkostlega Klais-orgel og hljómburður kirkjunnar laða að frábært tónlistarfólk víðs vegar að úr heiminum og stendur Alþjóðlega orgelsumarið þetta árið sannarlega undir nafni: í ár eru organistarnir frá Bandaríkjunum, Svíþjóð, Lettlandi, Hollandi, Bretlandi, Frakklandi, Þýskalandi og Íslandi – sumir þeirra stór nöfn í orgelheiminum eins og Leo Doeselaar organisti við Concertgebouw í Amsterdam, Douglas Cleveland frá Plymouth Church í Seattle og Mattias Wager organisti við Storkyrkan í Stokkhólmi.

Ungur, franskur afreksorganisti hefur tónleikaröðina með tónleikum helgina 18. og 19. júní. Thomas Ospital er aðeins 27 ára gamall en er margverðlaunaður fyrir leik sinn og þegar tekinn við stöðu organista við hina virtu St. Eustache-kirkju í París. Enn yngri er síðan hin bandaríska Katelyn Emerson sem leikur síðar í sumar, rísandi stjarna sem hefur sópað að sér viðurkenningum og hlaut í fyrra Fulbright-styrk til að nema hjá hinum heimsþekkta Olivier Latry í Frakklandi, en það var langþráður draumur hennar.

Dagskrá orgelsumarsins sýnir glöggt hversu gríðarmikið hefur verið samið af flottum verkum fyrir þetta magnaða hljóðfæri og eru efnisskrár afar fjölbreyttar. Margir erlendu gestanna leika verk frá eigin heimalandi, Sigrún Magna Þórsteindóttir organisti Akureyrarkirkju leikur eintóm orgelverk eftir konur og Lára Bryndís Eggertsdóttir er ófáanleg til að láta nokkuð uppi um dularfulla efnisskrá sína og saxófónleikarans Dorthe Højland, sem verður víst að vera háleynileg til að ganga upp!

Og enn er verið að skrifa verk fyrir orgel, þar á meðal hérlendis. Björn Steinar Sólbergsson mun á tónleikum sínum í sumar frumflytja glænýtt verk eftir Hreiðar Inga. Þá skyldi ekki gleyma þeim fjölmörgu umritunum á hljómsveitarverkum sem gerðar hafa verið fyrir þessa drottningu hljóðfæranna, en hinn virti, hollenski organisti Leo van Doeselaar mun leika eina slíka, Lærisvein galdrameistarans eftir Dukas.

Á kórtónleikum orgelsumarsins syngur hinn rómaði kammerkór Hallgrímskirkju, Schola cantorum.  Kórinn, sem er margverðlaunaður, fagnar í ár 20 ára afmæli sínu og glænýrri geislaplötu sem ber heitið MEDITATIO og kemur út á næstunni hjá sænsku útgáfunni BIS. Á plötunni eru mögnuð kórverk frá 20. og 21. öldinni sem tjá sorg og ástvinamissi en jafnframt huggun og von. Meðal verka á plötunni eru hið tregafulla og ljúfa Requiem eftir Jón Leifs, hið ójarðneska Lux aurumque eftir Eric Whitacre, The lamb eftir Tavener og Heyr himna smiður eftir Þorkel Sigurbjörnsson, sálmurinn sem margir telja þann fegursta sem saminn hefur verið hér á landi. Kórinn mun á tónleikum sumarsins syngja verk af plötunni ásamt sígildum kórperlum.

 

Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju 2016

18. júní – 21. ágúst

IMG_5849

Tónleikar sumarsins

Concerts this summer

18.6. 12 noon  Thomas Ospital, St. Eustache, Paris, France.

19.6. 5 pm  Thomas Ospital, St. Eustache, Paris, France.

22.6. 12 noon  Schola cantorum chamber choir, Hallgrímskirkja.

23.6. 12 noon  Guðmundur Sigurðsson, Hafnarfjarðarkirkja, Hafnarfjörður, Iceland.

25.6. 12 noon  Björn Steinar Sólbergsson, Hallgrímskirkja.

26.6. 5 pm  Björn Steinar Sólbergsson, Hallgrímskirkja.

29.6. 12 noon  Schola cantorum chamber choir, Hallgrímskirkja.

30.6. 12 noon  Hörður Áskelsson, Hallgrímskirkja.

2.7. 12 noon  Leo van Doeselaar, concert organist, The Netherlands.

3.7. 5 pm  Leo van Doeselaar, concert organist, The Netherlands.

6.7. 12 noon  Schola cantorum chamber choir, Hallgrímskirkja.

7.7. 12 noon  Sigrún Magna Þórsteinsdóttir, Akureyrarkirkja, Akureyri, Iceland.

9.7. 12 noon  Kári Þormar, Dómkirkjan, Reykjavík.

10.7. 5 pm  Kári Þormar, Dómkirkjan, Reykjavík.

13.7. 12 noon  Schola cantorum chamber choir, Hallgrímskirkja.

14.7. 12 noon  Lára Bryndís Eggertsdóttir organ, Iceland, and Dorthee Højland saxophone, Denmark.

16.7. 12 noon  Katelyn Emerson, USA.

17.7. 5 pm  Katelyn Emerson, USA.

20.7. 12 noon  Schola cantorum chamber choir, Hallgrímskirkja.

31.7. 12 noon  Jón Bjarnason, Skálholtsdómkirkja, Skálholt, Iceland.

23.7. 12 noon  Ligita Sneibe, concert organist, Latvia.

24.7. 5 pm Ligita Sneibe, concert organist, Latvia.

27.7. 12 noon  Schola cantorum chamber choir, Hallgrímskirkja.

28.7. 12 noon  Larry Allen organ and Scott Bell oboe, USA.

30.7. 12 noon  Douglas Cleveland, Plymouth Church, Seattle, USA.

31.7. 5 pm  Douglas Cleveland, Plymouth Church, Seattle, USA.

3.8. 12 noon  Schola cantorum chamber choir, Hallgrímskirkja.

4.8. 12 noon  Friðrik Vignir Stefánsson, Seltjarnarneskirkja, Seltjarnarnes, Iceland.

6.8. 12 noon  Mattias Wager, Storkyrkan, Stockholm, Sweden.

7.8. 5 pm  Mattias Wager, Storkyrkan, Stockholm, Sweden.

10.8. 12 noon  Schola cantorum chamber choir, Hallgrímskirkja.

11.8. 12 noon  Hörður Áskelsson organ and Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzosoprano, Iceland.

13.8. 12 noon  Christoph Schöner, Michaeliskirche, Hamburg.

14.8. 5 pm  Christoph Schöner, Michaeliskirche, Hamburg.

17.8. 12 noon  Schola cantorum chamber choir, Hallgrímskirkja.

18.8. 12 noon  Kári Allansson, Háteigskirkja, Reykjavík.

20.8. 12 noon  James McVinnie, concert organist, London.

20.8.   3–8 pm Cultural Night of Reykjavik in Hallgrimskirkja – free entrance.

21.8. 5 pm  James McVinnie, concert organist, London.

Aðgangseyrir/ Admission: 

Miðvikudagar Schola cantorum í hádeginu: 2.000 kr. Listvinir fá helmingsafslátt.

Fimmtudagar orgeltónleikar í hádeginu: 2.000 kr.

Laugardagur orgeltónleikar í hádeginu: 2.000 kr.

Sunnudagur orgeltónleikar kl. 17: 2.500 kr.

Listvinir fá ókeypis á orgelsumarið. Fá helmingsafslátt á tónleika Scola cantorum. 

 

Listrænn stjórnandi: Hörður Áskelsson  hask@hallgrimskirkja.is  693 6690

Tónleikastjóri: Sigríður Ásta Árnadóttir  siggasta@internet.is  698 6774

Framkvæmdastjóri: Inga Rós Ingólfsdóttir ingaros@hallgrimskirkja.is  696 2849