Miðvikudagurinn 27. júlí
Bjartir óbótónar munu fléttast saman við hinar mörgu raddir Klais-orgelsins í Hallgrímskirkju á fimmtudaginn komandi (28. júní) klukkan tólf. Tveir framúrskarandi hljóðfæraleikarar Sinfóníuhljómsveitarinnar í Pittsburgh í Bandaríkjunum halda þá tónleika á Alþjóðlegu orgelsumri í Hallgrímskirkju. Það er Scott Bell sem blæs í óbóið og Larry Allen sem fer fimum fingrum (og fótum) um orgelið. Munu þeir leika verk eftir Bach, Haydn og Rheinberger á þessum hálftímalöngu tónleikum.
Klais-orgel Hallgrímskirkju, með sínar 72 raddir, er hljóðfæri á heimsmælikvarða og laðar til sín flinkustu orgelleikara veraldarinnar. Og sumir þeirra heillast svo af hljóðheimi orgelsins og kirkjunnar að þeir koma aftur og aftur. Einn þeirra er hinn virti Douglas Cleveland frá Bandaríkjunum. Douglas kemur nú til þriðja fundar við Klais-orgelið og leikur tvenna tónleika á Alþjóðlegu orgelsumri um næstkomandi helgi. Douglas mun á tónleikunum leika spennandi blöndu af gamalli og nýrri orgeltónlist sem spannar allt frá Bach og Marchand til bandarískra samtímatónskálda.