Alþjóðlegt orgelsumar - Tónleikadagskrá vikunnar

09. ágúst 2016
Níunda vika Alþjóðlega orgelsumarsins 2016 er nú hafin og framundan er alveg sérstaklega viðburðarík og spennandi vika með útgáfutónleikum, drottningararíum og Bach-veislu. Nánari upplýsingar eru inn á vef listvinafélagsins.

Miðvikudagurinn 10. ágúst kl. 12

Kammerkórinn Schola cantorum mun á þennan miðvikudag halda glæsilega útgáfutónleika til þess að fagna útkomu nýs geisladisk. Geisladiskurinn ber heitið Meditatio og kemur út frá útgáfurisanum BIS. Verkin eru öll frá 20. og 21. öldinni og tjá sára sorg og söknuð ástvinamissis en fela jafnframt í sér þá kraftmikla von og huggun sem tónlistin getur veitt. Kórinn fagnar útgáfu plötunnar með tónleikum í Hallgrímskirkju á þessum alþjóðlegum útgáfudegi klukkan 12. Sungin verða verk af Meditatio og boðið upp á kaffi á eftir. Stjórnandi er Hörður Áskelsson.

Miðasala hefst 1 klukkustund fyrir tónleika og er verðið 2.500 kr. Hægt er að kaupa diskinn í miðasölunni.

Fimmtudagurinn 11. ágúst kl. 12

Hörður Áskelsson organisti og Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzósópran sameina krafta sína á tónleikum þennan fimmtudaginn.

Á efnisskránni eru einnig arían Buss und Reu úr Matteusarpassíu J.S. Bachs, sönglag eftir Jón Leifs og íslenskt þjóðlag ásamt tveimur sálmforleikjum eftir Bach. Þau Hörður og Sigríður Ósk uppskáru tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir samstarf sitt síðasta sumar svo það er sannarlega tilhlökkunarefni að þau skuli aftur halda tónleika saman í Hallgrímskirkju í ár.

Miðasala er við innganginn sama dag frá kl. 11.00. Miðaverð er 2000 krónur.

Sigríður-Ósk-224x300

Schöner-300x200

Laugardagurinn 13. ágúst kl. 12 og sunnudaginn 14. ágúst kl. 17

Þýski organistinn Christoph Schoener mun svo vera á helgarvaktinni og halda tónleika á laugardeginum og sunnudeginum. Christoph Schoener er starfandi kantor við Michaeliskirkju í Hamborg. Rómantísk, þýsk tónlist er á efnisskrá Christophs, en hann mun krydda Bach-veisluna með verkum eftir Brahms, Reger og Schumann. Þá verður og á efnisskránni verk eftir svissneska tónskáldið og organistann Lionel Rogg, sem sjálfur er víðfrægur fyrir leik sinn á verkum Bachs.





Tónleikarnir eru laugardaginn 13. ágúst kl 12.00 (aðgangur 2000 kr) og sunnudaginn 14. ágúst kl. 17.00 (aðgangur 2500 kr). Miðasala hefst við innganginn klukkustundu fyrir tónleika, en einnig má nálgast miða á midi.is