Ástin í Hallgrímskirkju !

04. september 2022
Fréttir
Ástin - fræðsludagskrá

„Það er gott að elska“ söng þjóðpopparinn Bubbi. „All you need is love“ sungu Bítlarnir. „Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi“ söng Páll postuli. Ástin er margvísleg, ást til maka, barna, foreldra, eigin sjálfs, náttúrunnar og Guðs. Ást syngur í lífsgleði en líka í sorg. Í hádeginu á þriðjudögum í Hallgrímskirkju verður rætt um ástina í fjölskyldum, ógnir og tækifæri. Samverurnar verða kl. 12.10-13:00 í Suðursal kirkjunnar. Dagskrá á vegum Hallgrímskirkju og prestar kirkjunnar stýra samverunum.

6. september Fjölskyldan – ógnir og tækifæri

Sr. Vigfús Bjarni Albertsson, forstöðumaður Fjölskylduþjónustu kirkjunnar, ræðir um fjölskyldur í gleði og sorg.

13. september Að næra ástina

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, leikkona og höfundur, veltir fyrir sér því óútreiknanlega afli sem ástin er og hvernig hana megi næra og efla.

20. september Ofbeldi í ástarsamböndum og Konan hans Sverris

Valgerður Ólafsdóttir, sálfræðingur og rithöfundur, skrifaði metsölubókina Konan hans Sverris um reynslu konu af ofbeldi maka og hvernig ofbeldið litaði allt fjölskyldulífið. Skilnaður var yfirvofandi en beðið lengi.

27. september - Erfðaréttur og ástin

Elín Sigrún Jónsdóttir, lögmaður og eigandi ráðgjafafyrirtækisins Búum vel, þjónar fólki við að greina tækifæri og taka skref til aukinna lífsgæða með því að selja og kaupa fasteignir, gera kaupmála og erfðaskrár. Ástin á ekki vera blind á peninga!

4. október - Ástin, ógnir og tækifæri

Opið samtal. Fyrirlesarar ræða um ástina og fjölskyldulífið. Samtalið verður það opið að fundarmenn geta tekið til máls og sagt sögur.