Barna og unglingakór í Hallgrímskirkju 2015-2016

08. september 2015


Ert þú á aldrinum 10-13 ára og hefur gaman að því að syngja?

Hallgrímskirkja endurvekur kórstarf með ungu fólki, veturinn 2015-2016.

Kórinn er ætlaður stúlkum og drengjum á aldrinum 10-13 ára, af höfuðborgarsvæðinu og nágrannasveitarfélögum.

Kórstjóri er Ása Valgerður Sigurðardóttir.

Kórinn æfir tvisvar í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum kl 16:30 – 17:30.  Starfstímabil kórsins er frá byrjun september til maí.

Verkefni kórsins í vetur er meðal annars söngur í fjölskyldumessu, æfingadagur/heimsækja annan kór, aftansöngur á aðfangadag ásamt Mótettukór Hallgrímskirkju, kórsöngur á Reykjavík Peace Festival (Friðarhátíð) í febrúar 2016 og Söngvahátíð barnanna á skírdag.

Nánari upplýsingar um skráningu og kórstarfið í Hallgrímskirkju næsta vetur fást hjá Ásu Valgerði kórstjóra. Netfangið er: asa@hallgrimskirkja.is, inn á síðu kórsins á facebook: Barna og unglingakór Hallgrímskirkju og í síðuflipanum um kórinn: Nánari upplýsingar um barna og unglingakórinn