Barna -og unglingakór Hallgrímskirkju og Barnakór Ísaksskóla syngja á 17. júní kl. 11

16. júní 2016


Við hátíðarathöfn á 17. júní kl. 11 mun Barna -og unglingakór Hallgrímskirkju og Barnakór Ísaksskóla syngja saman Hver á sér fegra föðurland á Austurvelli eftir ávarp forsætisráðherra, Sigurðar Inga Jóhannssonar. Stjórnandi kóranna er Ása Valgerður Sigurðardóttir. Við hvetjum alla til þess að fjölmenna og hlusta á hátíðarathöfnina og fallegan söng kóranna okkar undir stjórn Ásu Valgerðar.

Dagskrá 17. júní í Reykjavík má finna hér.