Cantate - æskulýðskór frá Portsmouth Cathedral heldur tónleika

21. febrúar 2019

TÓNLEIKAR Í HALLGRÍMSKIRKJU


Cantate, æskukór frá Portsmouth Cathedral.
Stjórnandi: David Price, Orgel: Sachin Gunga

Laugardaginn 23. febrúar kl. 14.00
Aðgangseyrir 2.500 kr.



Æskukórinn Cantate er einn af þremur kórum við Dómkirkjuna í Portsmouth á Bretlandi. Kórinn var stofnaður árið 2006 og í honum eru 26 kórfélagar á unglingsaldri.

Tónlistarlíf við dómkirkjuna í Portsmouth er sérlega glæsilegt og hafa kórar kirkjunnar stórt hlutverk í helgihaldi hennar auk þess að halda tónleika. 

Æskukórinn Cantate hefur sungið bæði í Westminster Abbey, The Royal Albert Hall og komið fram í breska útvarpinu BBC. Kórinn hefur ferðast víða um Evrópu en þetta er fyrsta tónleikaferðin þeirra til Íslands. Á efnisskrá þeirra er bresk tónlist þekktra tónskálda úr samtíma og frá fyrri öldum og fylgir tónlistin tímabilum kirkjuársins.

David Price, stjórnandi kórsins ferðaðist til Íslands sumarið 2016 og varð svo heillaður af landinu að hann hóf strax undirbúning að tónleikaferðinni. 

Kórinn heldur tónleika í Hallgrímskirkju laugardaginn 23. febrúar kl. 14 og kemur einnig fram í messu í Hallgrímskirkju sunnudaginn 24. feb. kl. 11, áður en hann heldur heim á ný. 

Aðgangseyrir að tónleikunum er 2.500 kr. og miðasala í kirkjunni 1 klst. fyrir tónleikana.