Fimmtudagsæfing barna og unglingakórs Hallgrímskirkju

08. október 2015


Fimmtudaginn 8. október kl. 16.30 – 17.30 er æfing hjá kórnum en hann æfir að jafnaði tvisvar í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum á þessum tíma.

Kórinn er ætlaður stúlkum og drengjum á aldrinum 10-13 ára, af höfuðborgarsvæðinu og nágrannasveitarfélögum.

Verkefni kórsins í vetur er meðal annars söngur í fjölskyldumessu, æfingadagur/heimsækja annan kór, aftansöngur á aðfangadag ásamt Mótettukór Hallgrímskirkju, kórsöngur á Reykjavík Peace Festival (Friðarhátíð) í febrúar 2016 og Söngvahátíð barnanna á Skírdag.

Nánari upplýsingar eru hjá kórstjóra, Ásu Valgerði Sigurðardóttur, s: 699 4373.

Barna og unglingakór Hallgrímskirkju á facebook