Fjölnir og Hörður á fimmtudagstónleikum

08. júlí 2015


Alþjóðlegt orgelsumar stendur nú sem hæst í Hallgrímskirkju með þrennum orgeltónleikum í hverri viku auk þess sem Schola cantorum heldur vikulega hádegistónleika á miðvikudögum. Eftir að hafa fengið innlenda og erlenda organista í heimsókn er komið að kantor Hallgrímskirkju, Herði Áskelssyni organista, að sitja við hljómborðin fjögur í Klais orgelinu stóra, og fylla hvelfingar Hallgrímskirkju af ómum, en hann leikur á tónleikum helgarinnar. Á tónleikum fimmtudagsins verður Fjölnir Ólafsson, baritónsöngvari, með Herði, en þeir munu flytja fjölbreytta og fallega hálftíma langa dagskrá. Tónleikarnir hefjast kl. 12.00 fimmtudaginn 9. júlí og miðaverð er 2000 kr.