Fjölskyldumessa og sumarhátíð barnanna 28. maí kl. 11

26. maí 2017


Prestur er sr. Birgir Ásgeirsson og með honum þjónar Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi. Messuþjónar aðstoða. Barna -og unglingakór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Ásu Valgerðar Sigurðardóttur. Organisti er Hörður Áskelsson.

Eftir messu verða grillaðar pylsur, blásið upp hoppukastala, boðið upp á andlitsmálningu og kandífloss ofl. í suðursalnum.

Einnig mun sænski kórinn Katarina Kammerkör vera með opna tónleika í hálftíma eftir messu.

Verið hjartanlega velkomin, ungir sem aldnir!