Framkvæmdir og hlúð að starfsfólki

25. apríl 2019

Unnið að lyftuskiptum, aðstöðu fyrir starfsfólk og öryggismálum í turni Hallgrímskirkju. Þetta var allt löngu komið á tíma. Björn Steinar Sólbergssson, organisti Hallgrímskirkju, hefur t.d. aldrei haft neina skrifstofuaðstöðu, heldur aðeins skáp í almannarými. Hallgrímskirkja er ekki fullbyggð og í viðhaldi, heldur enn á byggingarstigi. Skemmtilegt viðtal við Sigríði Hjálmarsdóttur, framkvæmdastjóra Hallgrímskirkju, gefur innsýn í framkvæmdir. Loksins kaffistofa og afdrep fyrir kraftaverkastarfsmenn og organistarnir fá sameiginlegt skrifstofuherbergi - meiri lúxus er það nú ekki.