Friðartónleikar þriðjudag kl. 18

07. mars 2022
Fréttir

Friðartónleikar í Hallgrímskirkju verða þriðjudaginn 8. mars kl. 18. Fram koma Ragnar Kjartansson, Bubbi Morthens, KK, Ellen Kristjánsdóttir, Þorsteinn Einarsson í Hjálmum, Alexandra Chernyshova, Kór Hallgrímskirkju, Eyþór Gunnarsson, Sigga, Beta og Elín Ey og Jói P. og Króli. Ávörp flytja Kári Stefánsson og Cristofer Cristofer. Úkraínumenn sæta nú miskunnarlausum árásum af hálfu nágranna sinna, Rússa. Komum saman og sýnum samhug okkar með úkraínsku þjóðinni og líka með rússneskum almenningi sem mætir grimmd og harðræði fyrir að mótmæla innrásinni. Þessi mikli harmleikur snertir okkur öll. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir og hægt verður að kveikja á friðarljósi fyrir Úkraínu. sáþ