Fyrirbænamessa í kórkjallaranum

19. september 2016




Á þriðjudögum kl. 10.30 – 11.00 er ávallt fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Á morgun, 20. september mun sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiða stundina sem verður með altarisgöngu. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja á kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina.

Verið velkomin.