Fyrirbænamessa og Liðug á líkama og sál á þriðjudögum

03. október 2016
Á morgun, þriðjudaginn 4. október kl. 10.30 – 11.00 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum með altarisgöngu. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja á kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina.

Kl. 11 byrjar svo starf eldri borgara, Liðug á líkama og sál. Á dagskránni þann þriðjudag er hópferð í Fjarðarkaup, Hafnarfirði. Mjöll Þórarinsdóttir og Helga Þorvaldsdóttir sjá um stundina.

Verið hjartanlega á báða viðburði.