Fyrsta kóræfing hjá barna og unglingakór Hallgrímskirkju

22. september 2015


Fyrsta æfing kórsins er þriðjudaginn 22. september kl. 16.30 - 17.30 en kórinn æfir að jafnaði tvisvar í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 16.30 – 17.30.

Kórinn er ætlaður stúlkum og drengjum á aldrinum 10-13 ára, af höfuðborgarsvæðinu og nágrannasveitarfélögum.

Verkefni kórsins í vetur er meðal annars söngur í fjölskyldumessu, æfingadagur/heimsækja annan kór, aftansöngur á aðfangadag ásamt Mótettukór Hallgrímskirkju, kórsöngur á Reykjavík Peace Festival (Friðarhátíð) í febrúar 2016 og Söngvahátíð barnanna á Skírdag.

 

Nánari upplýsingar eru hjá kórstjóra, Ásu Valgerði Sigurðardóttur, s: 699 4373.

Email: asa@hallgrimskirkja.is

Barna og unglingakór Hallgrímskirkju á facebook