Fyrsta kyrrðarstund vetrarins!

14. september 2016


Hinar vinsælu kyrrðarstundir hefjast aftur eftir gott sumarfrí fimmtudaginn 15. september kl. 12. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu með bæn. Prestur er sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir og organsti er Björn Steinar Sólbergsson. Eftir stundina er svo seld súpa á vægu verði í Suðursal kirkjunnar.

Verið hjartanlega velkomin!