Ég vil að þú vitir +2,0°C

03. febrúar 2020


Föstudagskvöldið 7. febrúar kl. 20:00 frumflytur organistinn Kristján Hrannar Pálsson loftslagsverkið +2,0°C á Klais-orgel Hallgrímskirkju. Rithöfundurinn Andri Snær Magnason heldur stutta ræðu í upphafi.

Tónleikarnir eru hluti af Vetrarhátíð Reykjavíkurborgar.

Aðgangseyrir: 2.500.- krónur og rennur allur ágóði tónleikanna til Votlendissjóðs. Hægt er að kaupa miða hjá TIX.is.