Hallgrímskirkja í Singapore

06. janúar 2020
Vinkona mín sendi mér mynd af sér fyrir framan eftirlíkingu af Hallgrímskirkju. Henni þótti greinilega gaman að hafa rambað á kirkjuna á óvæntum stað. Hún var í Gardens by the Bay í Singapore. Í þeim miklu garðahvelfingum hefur verið sett upp norræn jólasýning með táknmyndum Norðurlanda. Hallgrímskirkja var valin sem táknbygging Íslands. Fyrir framan kirkjuna voru svo pokar og krukkur með mat sem notaður er á Íslandi, s.s. hveiti og sykri.

Hallgrímskirkja er í garðahvelfingu Singapore. Í vaxandi ferðamannastraumi til Íslands varð Hallgrímskirkja táknbygging í hugum ferðamanna. Íslenskir auglýsendur fóru svo að nota kirkjuna sem logo í auglýsingum – ekki aðeins fyrir útlendinga heldur líka fyrir Íslendinga. Ferðalag myndarinnar af Hallgrímskirkju um hugheima veraldar heldur áfram og einn áfangi á þeirri ferð er sýningin í Singapore. SÁÞ