Haustferð Kvenfélagsins laugardaginn 24. september

18. september 2016
Haustferð Kvenfélags Hallgrímskirkju verður laugardaginn 24. september 2016 kl. 10.00.



Farið verður að Múlakoti í Fljótshlíð. Hádegisverður á Kaffi Langbrók.

Um Múlakot segir á síðu Minjastofnunar;

Byggingar í Múlakoti, rústir útihúsa, garðurinn framan við húsin ásamt lysthúsinu mynda eina, órofa minjaheild sem mikilvægt er að verði varðveitt til komandi kynslóða. Bæjarhúsin voru reist í áföngum á árunum 1898 til 1946 á rústum torfbæjar sem enn má sjá í kjallara undir húsinu. Hlutar hússins frá ólíkum tímaskeiðum hafa varðveist í nánast upprunalegri mynd og vitna um samfellda búsetusögu margra kynslóða. Múlakot hefur sérstakt menningarsögulegt gildi sem einn elsti gisti- og greiðasölustaður héraðsins sem jafnframt var sveitaheimili og aðsetur listamannsins Ólafs Túbals. Staðurinn hefur sérstaka tengingu við íslenska listasögu en nokkrir af helstu myndlistarmönnum þjóðarinnar dvöldu þar og máluðu þjóðkunn málverk af staðnum og umhverfi hans. Loks er garður Guðbjargar Þorleifsdóttur frá 1897 einn elsti og merkasti einkagarður landsins.

Hægt er að skrá sig hjá kirkjuvörðum í síma 510 eða hjá kirkjuverdir@hallgrimskirkja.is , Ásu í síma 8454648 eða Guðrúnu í síma 6993266.

Verðið er 7000.

Stjórn Kvenfélagsins