Hádegisjól með Schola cantorum

14. desember 2017

Hádegisjól með Schola cantorum föstudaginn 15. desember klukkan 12.00.


Tónleikarnir eru aðrir í röð þriggja hádegistónleika kórsins á föstudögum í desember.



Á efnisskránni eru ýmsir vinsælir aðventu- og jólasöngvar, m.a. ný útsetning eftir Auði Guðjohnsen kórfélaga á Hátíð fer að höndum ein.


Einsöngvarar eru úr röðum kórsins og föstudaginn 8. des. eru það Guðmundur Vignir Karlsson tenór, sem syngur einsöng í Betlehemsstjörnunni eftir Áskel Jónsson og Hildigunnur Einarsdóttir alt, sem syngur einsöng í Ave María eftir Sigvalda Kaldalóns. Einnig flytur kórinn fagra aðventu- og jólatónlist eins og m.a. Það aldin út er sprungið, gullfalleg verðlauna jólalög eftir Hafliða Hallgrímsson og Jólagjöfina eftir stjórnandann Hörð Áskelsson, sem leikur einnig á stóra Klais orgelið.

Miðasala er við innganginn, miðaverð 2500 kr. – 50% afsl. fyrir listvini. listvinafelag.is