Hádegisjól með Schola cantorum föstudaginn 8. desember klukkan 12.00. 

08. desember 2017

Hádegisjól með Schola cantorum föstudaginn 8. desember klukkan 12.00.


Tónleikarnir eru aðrir í röð þriggja hádegistónleika kórsins á föstudögum í desember.



Á efnisskránni eru ýmsir vinsælir aðventu- og jólasöngvar, m.a. ný útsetning eftir Auði Guðjohnsen kórfélaga á Hátíð fer að höndum ein.


Einsöngvarar eru úr röðum kórsins og föstudaginn 8. des. eru það Guðmundur Vignir Karlsson tenór, sem syngur einsöng í Betlehemsstjörnunni eftir Áskel Jónsson og Hildigunnur Einarsdóttir alt, sem syngur einsöng í Ave María eftir Sigvalda Kaldalóns. Einnig flytur kórinn fagra aðventu- og jólatónlist eins og m.a. Það aldin út er sprungið, gullfalleg verðlauna jólalög eftir Hafliða Hallgrímsson og Jólagjöfina eftir stjórnandann Hörð Áskelsson, sem leikur einnig á stóra Klais orgelið.

Miðasala er við innganginn, miðaverð 2500 kr. - 50% afsl. fyrir listvini. listvinafelag.is

EFNISSKRÁ  8. des. kl. 12

Hátíð fer að höndum ein Íslenskt þjóðlag / Icel. tradition. 

Útsetning / Arrangement: Auður Guðjohnsen *1975 

Það aldin út er sprungið Lag frá 15. öld / melody from 15th century, 

Útsetning / Arrangement: Michael Praetorius, 1571–1621 

Kom engill til mín Sigurður Flosason *1964 

Joseph and the Angel Hafliði Hallgrímsson *1941 

The King's Birthday Hafliði Hallgrímsson 

Heilög stund á jörð Sigurður Flosason 

Betlehemsstjarnan Áskell Jónsson 1911 ?2002 Einsöngur / Solo: Guðmundur Vignir Karlsson, tenór 

Ave María Sigvaldi Kaldalóns 1877–1946 Einsöngur / Solo: Hildigunnur Einarsdóttir, alt 

Jólagjöfin Hörður Áskelsson *1953