Hádegistónleikar Schola cantorum kl. 12 miðvikudaginn 21. ágúst

19. ágúst 2019

Hádegistónleikar Schola cantorum kl. 12 miðvikudaginn 21. ágúst í Hallgrímskirkju.



Á hádegistónleikunum verða flutt falleg, hátíðleg og skemmtileg dagskrá sem spannar vítt litróf frá miðöldum á Íslandi til vorra daga með viðkomu í íslenskum tvísöng auk þess sem nokkrar glæsilegar og þekktar perlur evrópskra tónbókmennta verða teknar til kostanna. Miðaverð er 2.700 kr. Miðasala hefst klukkustund fyrir tónleika en einnig er hægt að kaupa miða á MIDI.is.

Kammerkór Hallgrímskirkju, Schola cantorum, var stofnaður árið 1996 af Herði Áskelssyni kantor í félagi við nokkra meðlimi úr Mótettukór Hallgrímskirkju. Allar götur síðan hefur kórinn gegnt mikilvægu hlutverki í íslensku tónlistarlífi.
Frumflutningur á verkum íslenskra tónskálda hefur jafnan vegið þungt á efnisskrá kórsins en einnig fjölröddun endurreisnartímans auk þess sem Schola cantorum hefur flutt ýmis stórvirki barokksins ásamt Alþjóðlegu barokksveitinni í Hallgrímskirkju.

Schola cantorum verður með hádegistónleika á hverjum miðvikudegi í Hallgrímskirkju til 28. ágúst kl. 12:00.