Hádegistónleikar Schola cantorum miðvikudaginn 28. ágúst kl. 12

27. ágúst 2019

Hádegistónleikar Schola cantorum kl. 12 miðvikudaginn 28. ágúst í Hallgrímskirkju.




Á tónleikunum verður flutt falleg, hátíðleg og skemmtileg dagskrá sem spannar vítt litróf frá miðöldum á Íslandi til vorra daga með viðkomu í íslenskum tvísöng auk þess sem nokkrar glæsilegar og þekktar perlur evrópskra tónbókmennta verða teknar til kostanna. Miðaverð er 2.700 kr. og miðasala hefst í kirkjunni klukkutíma fyrir tónleika. Miðasala fer einnig fram á midi.is.

Þetta eru síðustu sumartónleikar Schola cantorum í ár.

Kammerkór Hallgrímskirkju, Schola cantorum, var stofnaður árið 1996 af Herði Áskelssyni kantor í félagi við nokkra meðlimi úr Mótettukór Hallgrímskirkju. Allar götur síðan hefur kórinn gegnt mikilvægu hlutverki í íslensku tónlistarlífi.

Frumflutningur á verkum íslenskra tónskálda hefur jafnan vegið þungt á efnisskrá kórsins en einnig fjölröddun endurreisnartímans auk þess sem Schola cantorum hefur flutt ýmis stórvirki barokksins ásamt Alþjóðlegu barokksveitinni í Hallgrímskirkju.